ÍBV heimsækir Grindavík í fyrstu umferð lengjudeildarinnar klukkan 18:00 í dag. Allir leikir í Lengjudeild karla og kvenna verða aðgengilegir í beinni útsendingu í sumar á vefsíðunnu Lengjudeild.is. Á þessari síðu verður allt streymi frá Lengjudeild karla og kvenna á einum stað. Einn leikur í hverri umferð verður í opinni dagskrá í boði Lengjunnar.

Félögin munu svo rukka þúsund krónur í Lengjudeild fyrir alla leiki, allur ágóði rennur til þess félags sem á heimaleik.