ÍBV stelpurnar í handbolta taka á móti botnliði FH í dag. FH liðið er án stiga eftir 13 umferðir og því um að ræða síðasta leik liðsins í Olísdeildinni um sinn. ÍBV situr í fjórða sæti deildarinnar og getur með sigri komist í það þriðja. Flautað verður til leiks klukkan 13:30.