Stelpurnar í 5. flokki kvenna eldri tryggðu sér í gær Íslandsmeistaratitilinn í sínum aldursflokki.
Stelpurnar hafa farið á þrjú mót í vetur og unnið alla sína leiki og sigrað öll mótin þrjú. Það er óhætt að segja að það sé virkilega vel af sér vikið! Þjálfarar stelpnanna eru Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Hákon Daði Styrmisson.