Prófkjör Framsóknar í Suðurkjördæmi fer fram á morgun laugardaginn 19. júní. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst á þriðjudaginn og sagði Magnea Björnsdóttir, formaður kjörstjórnar, að þátttaka hafi farið virkilega vel af stað. Enn er hægt að kjósa utankjörfundar í dag 18. júní og er kosið á Höfn, Selfossi, Vestmannaeyjum og Reykjanesbæ. Kjörstaði á laugardaginn má sjá á Facebooksíðunni „Framsókn í Suðurkjördæmi“ og framsokn.is

Í framboði eru:

  • Sigurður Ingi JóhannssonHrunamannahreppi – sækist eftir 1. sæti
  • Jóhann Friðrik FriðrikssonReykjanesbæ – sækist eftir 2. sæti
  • Silja Dögg GunnarsdóttirReykjanesbæ – sækist eftir 2. sæti
  • Daði Geir SamúelssonHrunamannahreppi – sækist eftir 2.- 4. sæti
  • Hafdís Hrönn HafsteinsdóttirÁrborg – sækist eftir 3. sæti
  • Halldóra Fríða ÞorvaldsdóttirReykjanesbæ – sækist eftir 3.- 4. sæti
  • Njáll RagnarssonVestmannaeyjum – sækist eftir 3.- 4. sæti
  • Ragnhildur Hrund JónsdóttirVík í Mýrdal – sækist eftir 3.- 5. Sæti

Talning fer fram sunnudaginn 20. júní og verða úrslit kunngjörð milli kl. 16 og 17 á Hótel Selfossi.