Það verður sannkallaður stórleikur sem fer fram á Hásteinsvelli í dag klukkan 18:00, þegar ÍBV fær Grindavík í heimsókn. Liðin eru í harðri baráttu um að komast upp í Pepsí Max deildina. ÍBV strákarnir eru í öðru sæti með 23 stig en Grindavík er í því fjórða með 20 stig. Tveir aðrir leikir fara fram í kvöld en leik Víkings Ó. og Fram í hefur verið frestað vegna kórónuveirusmits í leikmannahópi Ólsara.