Kjörstaður í Vestmannaeyjum við alþingiskosningar í dag laugardaginn 25. september 2021 er í Barnaskólanum, inngangar eru um norður- og suðurdyr. Aðgengi fyrir fatlaða er um norðurdyr.

Kjörfundur hífst núna kl. 9:00 árdegis og lýkur kl. 22:00 að kveldi.

Bænum verður skipt þannig í tvær kjördeildir:

Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 21. ágúst 2021 við Ásaveg til og með Hásteinsvegi auk þeirra, sem eru óstaðsettir í hús og þeirra sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi.

Í 2. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 21. ágúst 2021 við Hátún til og með Ægisgötu auk þeirra, sem búa að Hraunbúðum og húsum er bera bæjarnöfn.

Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskírteini getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.

Aðsetur Yfirkjörstjórnar á kjördag verður á kjörstað í Barnaskólanum.