Starfsmenn á vegum Vestmanneyjabæjar vinna nú að því að grisja trálund í Löngulág, sagt er frá þessu á heimasíður Vestmannaeyjabæjar. Grenitréin standa nokkuð þétt við hvort annað sem þrengir að þeim og takmarkar möguleika þeirra til að vaxa. Þegar að trjálundurinn er grisjaður fá tréin því betra vaxtarými til að breiða úr sér.

“Við grisjunina urðu til nokkur tré og töluvert af greinum. Það vill svo heppilega til að verið er að snyrta tréin í vikunni fyrir aðventu og verða tréin og greinarnar nýtt til skrauts hjá stofnunum bæjarins. Það má jafnvel segja að nytjaskógur hafi orðið til í Vestmannaeyjum en um leið árétta að skógarhögg er bannað öðrum en starfsmönnum á vegum bæjarins,” segir í fréttinni.

Þetta er þó ekki í fyrsta skipti í Vestmannaeyjum sem tré ræktuð í Vestmannaeyjum eru felld til skreitinga í grisjun. Árið 2019 voru felld í Hraunskógi, sem staðsettur er í nýja hrauninu austan við bæinn, nokkur tré í sama tilgangi. Trén sem voru grisjuð voru þá voru 18-19 ára gömul.