Á fundi Framkvæmda -og hafnaráðs þann 11. maí sl. var tekin fyrir framvinduskýrsla varðandi endurbætur á Ráðhúsinu. Reiknað er með að hægt verði að flytja inn á miðhæð og efstu hæð nú í sumar og mun þá stjórnsýsla bæjarins sem nú er á 2 hæð Landsbankans flytja þangað. Kemur fram að kjallari verði tilbúinn með haustinu.
Áfallinn kostnaður 335 milljónir en hluti þess kostnaðar er vegna framkvæmda á garði og umhverfis. Búið að er kaupa mest allt efni sem þarf til verksins innan- og utanhúss.