Eyjalistinn og Fyrir Heimaey munu áfram mynda meirihluta í bæjarstjórn Vestmannaeyja á næsta kjörtímabili.  Málefnasamningur þar að lútandi var undirritaður í Eldheimum í dag. Fjölskyldu- og fræðslumál verða áfram í forgangi; samhliða ábyrgum rekstri og fjárfestingu í innviðum samfélagsins. Sömuleiðis verður lögð áhersla á að veita bæjarbúum framúrskarandi þjónustu.
 
Samkomulag er um að Íris Róbertsdóttir verði áfram bæjarstjóri; Njáll Ragnarsson formaður bæjarráðs og Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar. 
Eyjalistinn verður með formennsku í fjölskyldu- og tómstundaráði og framkvæmda-og hafnarráði og Fyrir Heimaey verður með formennsku í fræðsluráði og umhverfis-og skipulagsráði.