Vestmannaeyjar eru komin á heimskort matgæðinga og öllum er boðið að koma og taka þátt í sjávarréttahátíðinni MATEY sem haldin verður 8., 9. og 10. september 2022.

Veitingastaðir, fiskframleiðendur og þjónustuaðilar í  sjávarsamfélaginu Vestmannaeyjum  taka höndum saman og vekja athygli á menningararfleiðinni og  fjölbreytta fiskinum sem framleiddur er í Eyjum og bjóða upp margvíslega töfrandi rétti úr frábæru hráefni úr Eyjum. 

Gestakokkar verða á veitingastöðunum í Eyjum og koma til með að útbúa sérstaka matseðla fyrir hátíðina.

Úr ruðningi í eldamennskuna
Einn af kokkunum sem kemur á hátíðina heitir Ron McKinlay og er frá Kanada. Eftir að hafa lokið matreiðsluprófi í heimabæ sínum, Vancouver, hélt hann til Nýja Sjálands til að spila ruðning og ferðast um heiminn, þar til meiðsli bundu enda á feril hans snemma á tvítugsaldri. Það var þá sem hann ákvað að flytja aftur til Kanada og gefa eldamennsku tækifæri.

Ron tók stökkið árið 2010, alla leið til Melbourne í Ástralíu, þar sem hann hjálpaði til við að opna Maze með engum öðrum en Gordon Ramsay, en hélt síðan til Estelle Bar & Kitchen að vinna undir kokkinum Scott Pickett.

Eftir að hafa unnið sig upp í stöðu aðstoðaryfirkokks, var hann skipaður af kokkinum Pickett til að opna og leiða Saint Crispin sem yfirkokkur, en Saint Crispin vann sér inn tvo hatta árið 2014. Árið eftir tók Ron annað stórt skref – í þetta skiptið sem yfirkokkkur á Six Senses dvalarstaðnum í Zighy Bay, Óman. Þó hann hafi fagnað sjálfsstæði sínu þar og notað tækifærið til að búa til og prófa nýja rétti, ákvað hann eftir 18 mánuði að hann væri tilbúinn að fara aftur heim til Kanada.

Á Canoe sameinar Ron fjölda fágaðra aðferða við nútíma matreiðslustíla í starfi sínu sem yfirkokkur. Hann hefur brennandi áhuga á því að búa til nýja rétti og brögð byggðum á kanadísku hráefni – allt frá þangi frá Bresku Kólumbíu, birkisírópi frá Ontario, tei frá Labrador og krabba frá Fogoeyju.

Ron McKinlay hefur alltaf elskað mat – hvort sem hann var að rannsaka sunnudagssteik mömmu sinnar eða blanda í vöffludeig á laugardagsmorgnum.