Það er af sem áður var, að störf í sjávarútvegi séu einhæf eða einsleit, í dag eru þau allt annað en það! Við tókum nokkrar konur tali sem hafa unnið í fiskvinnslu í skemmri eða lengri tíma í Vestmannaeyjum og komumst að því að störfin eru bæði mörg og fjölbreytt og að starf innan stöðvanna getur tekið ýmsum breytingum í gegnum tíðina.

Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir lætur sér ekki nægja að sinna fjármálum fjölskylduútgerðarinnar, Óss ehf. sem gerir út Þórunni Sveinsdóttur VE sem byggir á þeim grunni sem afi hennar, Óskar á Leó VE lagði á síðustu öld. Hún rekur líka ásamt fjölskyldunni verslunina Kubuneh sem nefnd er eftir þorpi í Gambíu. Allur peningur sem kemur inn fer óskiptur til heilsugæslu sem þau reka í Kubuneh og þjónar allt að 15.000 manns. 

En hver er Þóra Hrönn? Hún er gift Daða Pálssyni og saman eigum við börnin Óliver og Sunnu. „Ég sé um alla skrifstofuvinnu, bókhald, laun, útflutningspappíra og fleira.  Ég hef unnið samfleytt í 23 ár hjá Ós og svo auðvitað þegar ég var unglingur þegar maður var að fella og skera af netum,“ segir Þóra Hrönn.   

Hún segir starfið hafa tekið miklum breytingum. „Stærsta breytingin fyrir mig á skrifstofunni er hvað allt er orðið rafrænt.  Þar sem ég vinn hjá sjálfri mér ræð ég deginum sjálf og því er enginn dagur eins og ekki til hefðbundinn vinnudagur hjá mér.   

Það eru kostir og gallar við að vinna hjá sjálfum sér, ég stjórna mínum vinnutíma sjálf en það leysir mig heldur enginn af ef ég fer í frí. Maður tekur því  vinnuna alltaf með sér og þarf svo að vinna upp það sem eftir er þegar heim er komið.“