Kolmunnavinnsla fer í gang með miklu trukki í þetta sinn. Í Fiskimjölsverksmiðju VSV var byrjað að bræða kolmunnann síðastliðinn sunnudag og þar á bæ hafa menn tekið við alls 6.600 tonnum á fjórum sólarhringum.

Á forsíðumyndinni eru fyrstu mjölsekkir vertíðarinnar komnir í geymslu.

Færeyska skipið Tróndur í Gøtu landaði 2.100 tonnum og á eftir fylgdu VSV-skipin Gullberg og Huginn með samtals 4.500 tonn. Skipin eru öll farin aftur til veiða.

Því fylgdi óvenju mikil spenna og eftirvænting að hefja bræðsluna nú enda reyndi í fyrsta sinn á tæknibúnaðinn sem settur var upp í verksmiðjunni fyrr í vetur, nýjan sjóðara, segir Unnar Hólm Ólafsson verksmiðjustjóri.

„Við gerðum ráð fyrir því að ræsa verksmiðjuna eftir helgina þegar Gullberg og Huginn hefðu landað en á laugardaginn boðaði Tróndur í Gøtu óvænt komu sína til okkar og einungis klukkutíma síðar var byrjað að landa úr skipinu.

Aflinn frá Færeyingum varð því til þess að við fórum að bræða strax á sunnudaginn og verður að segjast að vinnslan gengur vonum framar. Auðvitað þarf alltaf að stilla og fínstilla ný tæki í gangverkinu en það er bara eðli máls samkvæmt.

Þetta lítur afar vel út eins og til var stofnað. Nýju tækin auka afkastagetu, spara orku og styrkja rekstraröryggi verksmiðjunnar stórlega.

Aðstæður með tilliti til orkusparnaðar eru reyndar ekki sem skyldi nú um stundir. Raforkumiðlun til fiskimjölsverksmiðja landsmanna er verulega skert, þar á meðal til okkar. Við verðum því að brenna mun meira af olíu en ella væri. Þetta gerist hjá þjóð sem stærir sig af grænni orku!“

Nýi sjóðarinn á útopnu. Ljósmynd: Unnar Hólm.

Söguleg rúsína í pylsuenda

Tróndur í Gøtu upp á færeysku heitir að sjálfsögðu Þrándur í Götu í Færeyingasögu. Þar er fjallað um viðleitni Sigmundar Brestissonar til að kristna Færeyinga og gera þá skattþegna Noregskonungs á árunum 990-1002. Þrándur í Götu var andvígur hvoru tveggja.

Þetta var með öðrum orðum um svipað leyti og annar heiðingi, Þorgeir Ljósvetningagoði Þorkelsson lagðist undir feld á Þingvöllum, lá þar næturlangt og úrskurðaði að morgni að Íslendingar skyldu kristnir vera en fá samt að blóta í laumi.

Þrándur hefði betur brugðist sér undir feld líka – ekki með Þorgeiri á Þingvöllum heldur einn og sjálfur í Færeyjum.