Leikmaður ársins hjá ÍBV, Haley Thomas, hefur ákveðið að taka slaginn með liðinu á komandi leiktíð. Haley, sem var fyrirliði liðsins og lék frábærlega á tímabilinu 2022, er 23 ára bandarískur miðvörður.

Haley kom til ÍBV fyrir tímabilið 2022 frá Weber State University og lék hverja einustu mínútu í leikjum ÍBV á tímabilinu í hjarta varnarinnar. Hún skoraði eitt mark í 20 leikjum en það kom í bikarnum gegn Stjörnunni.