Vetrarbúningur í Vestmannaeyjum

Vestmannaeyjar tóku á sig fallegan vetrarbúning eftir snjókomuna í gær. Bjart veður og stilla settu svip sinn á daginn og mátti víða sjá snæviþaktar hlíðar og húsþök glitra í sólarljósinu. Halldór B. Halldórsson fangaði stemninguna á myndbandi sem fylgir fréttinni, þar sem eyjarnar njóta sín í tærri vetrarbirtu. Tökum flugið með Halldóri. (meira…)
Í snjó og blíðu

Eftir talsverða ofankomu í gær brast á með brakandi blíðu í dag. Allt hvítt og sólin farin að skína. Vestmannaeyjar skarta sínu fegursta í kyrrðinni sem fylgir nýföllnum snjó, þar sem birtan endurkastast af hvítum fjallshlíðum og þökum bæjarins. Myndbandið sem fylgir var tekið af Halldóri B. Halldórssyni og fangar einstaklega vel þetta augnablik þegar […]
Bongóblíða í Eyjum

Það er sannkallað blíðuveður á þessum áttunda degi febrúarmánaðar. Einungis mældust 6m/s á Stórhöfða á fjórtánda tímanum í dag. Þá voru 2 m/s í Vestmannaeyjabæ og 4 stiga hiti. Heldur óvenjuleg staða um hávetur. Ef litið er á spá Veðurstofunnar fyrir Suðurland þá segir: Norðaustan 8-13 á morgun, skýjað með köflum og líkur á stöku […]
Framkvæmdir í febrúar-blíðunni

Það viðraði vel til myndbands-upptöku í Eyjum í dag. Halldór B. Halldórsson nýtti sér það og fór hann á stjá vítt og breitt um eyjuna. Meðal þess sem hann veitir okkur innsýn í er byggingarframkvæmdir sem standa nú yfir. Myndbandið má sjá hér að neðan. Sjón er sögu ríkari. (meira…)