Á ekki von á öðru en nýja skipið verði tekið í sátt

�??Skipasmíðastöðin CRIST S.A. í Póllandi hefur lagt til að lengja nýju Vestmannaeyjaferjuna um 1,8 meter og breyta stefninu. Með því móti tekst að halda djúpristunni innan þeirra marka sem að var stefnt. Við þessar breytingar verður aðstaða fyrir farþega betri og ferjan getur flutt fleiri fólksbíla að jafnaði. �?essar breytingar eru verkkaupa að kostnaðarlausu en […]

Börnin ekki látin syngja jólalög með textum um kynhlutverk

Núna í desember hefur verið umræða á samfélagsmiðlum um texta í jólalögum sem sungin eru á jólaböllum um allt land. Mörgum finnst textarnir orðnir úreltir og að þeir ýti undir staðalmyndir um hlutverk stúlkna og drengja, kvenna og karla. Nokkrir hafa í því samhengi hrósað Hjallastefnunni fyrir að sniðganga þá texta sem fjalla um kynhlutverk […]

Bókarkafli: Anna �?? Eins og ég er

Í þessari bók er fjallað um ótrúlegt lífshlaup �?nnu Kristjánsdóttur vélfræðings sem var ein af fyrstu Íslendingunum sem lét leiðrétta kyn sitt. Hún vissi frá blautu barnsbeini að hún hefði fæðst í röngum líkama. Anna fæddist í Höfðaborginni í Reykjavík, hverfi sem byggt var til bráðabirgða í mikilli húsnæðiseklu snemma á fimmta áratug síðustu aldar. […]

Theodór markahæsti leikmaður ÍBV frá upphafi

Hornamaðurinn öflugi í liði ÍBV, Theodór Sigurbjörnsson, varð makahæsti leikmaður í sögu félagsins þegar hann skoraði sitt sjötta og síðasta mark í sigrinum á Haukum á sunnudaginn. �?að er óhætt að segja að helgin hafi verið ansi viðburðarrík og ánægjuleg fyrir Theodór en hann hefur undanfarna daga og vikur verið í Reykjavík, ásamt unnustu sinni […]

Sara Sjöfn: Má ekkert?

238 fjölmiðlakonur sendu frá sér yfirlýsingu á mánudaginn, ég var ein af þeim, til stuðning þeirra sem sagt hafa sína sögu og fordæma í leiðinni ofbeldi, áreiti eða niðurlægingu á forsendum kynferðis. �?ið þekkið þetta öll “;”metoo, vandamálið er stórt og það er okkar allra, allsstaðar. Fleiri hundruð kvenna hafa stigið fram allstaðar í heiminum. […]

Andri �?lafsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari ÍBV

Andri �?lafsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari ÍBV og er því formlega orðinn hluti af þjálfarateyminu ásamt þeim Jóni �?lafi Daníelssyni og Kristjáni Guðmundssyni. Andri varð hluti að þjálfarateymi ÍBV sl. tímabil eftir að ljóst var að hann gæti ekki spilað meira vegna meiðsla. Síðasti leikur Andra var á móti KR á Hásteinsvelli þann 14. […]

Mikið álag á kennurum sem bregðast þarf við

Talsvert hefur verið fjallað um niðurstöður samantektar samstarfsnefnda sveitarfélaga og grunnskólakennara vegna starfsumhverfis kennara og vinnumats í skólum. En mikið álag er á kennurum. Vestmannaeyjabær hefur hrint af stað fyrstu aðgerðum til að bregðast við þessum niðurstöðum og deildi Elliði Vignisson bæjarstjóri þeim á heimasíðu sinni og eru sem hér segir. Á skömmum tíma hefur […]

Vegan Wellington sló í gegn hjá fjölskyldunni í fyrra

Elísa Guðjónsdóttir er 28 ára gömul Eyjakona sem búsett er í Reykjavík ásamt manni sínum Sigurbergi Rúrikssyni og 15 mánaða gömlum syni þeirra, Rúrik Sigurbergssyni. Elísa er dóttir þeirra �?nnu Svölu Johnsen og Guðjóns Jónssonar, Gauja á Látrum og starfar sem flugfreyja samhliða BS námi í sálfræði við HÍ. Elísa, sem hefur verið grænmetisæta síðan […]

Kon­ur í fjöl­miðlum stíga fram

238 fjöl­miðlakon­ur, bæði nú­ver­andi og fyrr­ver­andi, segja nú­ver­andi ástand, í tengsl­um við áreitni, kyn­bundna mis­mun­un og kyn­ferðisof­beldi, ekki vera boðlegt og að þær krefj­ist breyt­inga. Hóp­ur­inn, sem kem­ur fram und­ir nafn­inu fimmta­valdið (“;”fimmta­valdið) hef­ur sent frá sér stuðnings­yf­ir­lýs­ingu við þær kon­ur sem hafa stígið fram og vakið at­hygli á mál­inu, auk þess sem þær segja […]

Andrés utangátta stóð öðrum framar í ár

Í byrjun mánaðar fundaði sérfræðinefnd jólabjórsmökkunar Eyjafrétta um málefni bjórneytenda Vestmannaeyja á ölstofu The Brothers Brewery. Ekki seinna vænna þar sem aðventan er komin á fullan snúning og fólk eflaust farið að huga að því að versla sér inn jólabjór. Sérfræðinefndin hefur það hlutverk eitt að vega og meta þá jólabjóra sem í boði eru […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.