nóvember, 2018

lau17nóv20:30Alþýðuhúsið: Á móti sól20:30

Lesa meira

Um viðburð

Hljómsveitin Á móti sól hefur verið lengi að. Ef allt er talið er sveitin orðin 22 ára, en starfsárin í núverandi mynd – frá því að Magni Ásgeirsson tók við míkrafóninum í lok síðustu aldar – eru orðin 19 og það sér engan veginn fyrir endann á vinskapnum og spilagleðinni.

Eftir sveitina liggja átta hljómplötur, sumar hafa selst í gull og platínu, aðrar miklu, miklu minna.

Hljómsveitin hefur gert bunka af vinsælum lögum. Fyrstu starfsárin komu smellirnir á færibandi, fyrst dillandi stuðlög á borð við Djöfull er ég flottur, Spenntur, Keyrðu mig heim og Æ mig langar upp á þig og síðar rómantík eins og Hvar sem ég fer, Vertu hjá mér, Ég er til og Allt. Svo fáein dæmi séu tekin.

Síðasta lagið sem ÁMS sendi frá sér kom út sumarið 2016. Það var stórsmellurinn Ég verð að komast aftur heim, sem var eitt mest spilaða lagið það árið.

Á Móti Sól verður í tónleika- og sögugírnum í Alþýðuhúsinu þann 17. nóvember. Hljómsveitin mun leika öll sín vinsælustu lög og segja sögurnar á bak við þau – og einhverjar allt aðrar sögur líka. Til dæmis kemur örugglega eitthvað af góðum sögum af Þjóðhátíð þegar líður á kvöldið.

Tími

(Laugardagur) 20:30

X