desember, 2018

fim13des18:00Alþýðuhúsið: Jón Jónsson og Friðrik Dór / Fjölskyldutónleikar18:00 Alþýðuhúsið:::Tónleikar

Lesa meira

Um viðburð

Bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór hafa þekkst allt frá því að sá síðarnefndi fæddist. Þeir eru einstaklega góðir vinir og eiga sömu mömmuna og sama pabbann. Í nokkur ár hafa þeir bræður haldið saman tónleika í aðdraganda jóla og verður engin breyting á því í ár.

Fimmtudaginn 13. desember ætla þeir að halda tvenna tónleika í Alþýðuhúsinu, annars vegar fjölskyldutónleika kl.18:00 þar sem mömmur, pabbar, frænkur, frændur, ömmur, afar og auðvitað allir krakkar eru velkomnir. Kl.21:00 verða svo tónleikar fyrir fullorðna fólkið eingöngu.

Munu þeir flytja öll sín vinsælustu lög í bland við önnur og því ekki ólíklegt að lög eins og Í síðasta skipti, Gefðu allt sem þú átt, Hlið við hlið og All, You, I fái að hljóma í Alþýðuhúsinu. Þá eru líkur á því að þeir bræður spjalli eilítið á milli laga og má búast við að það verði ekki margt viturlegt sem þeir deili með áhorfendum en skemmtilegt verður það.

Svo skömmu fyrir jól hefur jólaandinn heltekið þá bræður og því er það einlæg von þeirra að fólk gangi út með bros á vör og kærleik í hjarta.

Tími

(Fimmtudagur) 18:00

Staðsetning

Alþýðuhúsið

Skólavegi 21b

X