apríl, 2020

lau18apr20:00Gríndávaldurinn Sailesh20:00 Höllin

Lesa meira

Um viðburð

Gríndávaldurinn Sailesh á túr um landið í April 2020 og kemur til Eyja og endar túrinn í Höllinni Vestmannaeyjum Laugardagskvöldið 18.april.

„Ég lofa frábærri skemmtun. Það verður dúndrandi stemning á sviðinu og alls óvíst að allir verði í fötunum þegar upp er staðið, það er algjörlega val þeirra sem bjóða sig fram,“ segir grín-dávaldurinn Sailesh en hann kemur hingað til lands í April og mun ferðast um landið og halda 3 sýningar Sailesh byrjar á Græna Hattinum Akureyri þann 16.april 2020 fer svo til Reykjavikur í Austurbæ þann 17.april og endar túrinn í Höllinni Vestmannaeyjum Laugardagskvöldið 18.april.

Sailesh er einn vinsælasti og eftirsóttasti dávaldur heims um þessar mundir. Hann er þekktur fyrir krassandi sýningar og hefur MTV til dæmis kallað hann “fyndnasta, óritskoðaða dávald jarðar.” Sýningin sem hann mætir með er sögð fyndnari, grófari og öfgakenndari en áður og allt verði látið flakka. Tveir og hálfur klukkutími stútfullir af ótrúlegum uppákomum þar sem áhorfendur verða að stjörnum sýningarinnar fyrir framan vini og vandamenn sem gráta af hlátri við að sjá félaga sína fara á kostum á sviðinu.

Spurning er hvort óhætt sé fyrir ömmu og afa að mæta en Sailesh er meðal annars frægur fyrir að geta látið fólk fá fullnægingu með því einu að taka í höndina á því!

„Amma er velkomin, ef hún er ekki hjartveik og hefur mikinn húmor,“ segir hann sposkur og viðurkennir að grínið gæti gengið fram af einhverjum. „Sumir gætu örugglega móðgast eitthvað. Ég hef tekið prógrammið aðeins í gegn yfir árin. Samfélagið hefur auðvitað breyst. Í dag þarf að fara varlega í suma hluti. En ég er ekkert fyrir pólitíska rétthugsun. Það verður látið reyna á mörkin,“ segir hann.

Hvað segja áhorfendur?

“Sjúklega fyndin sýning! Ég hef ekki hlegið svona mikið í mörg ár.” – R.R., Miami Herald.

“Taktu með þér vasaklút og hreinar nærbuxur. Ég lofa því að þú munt gráta af hlátri og það eru góðar líkur á því þú missir þvag að auki.” – P.V, Arizona Daily Star.

“Ég hló eins og brjálæðingur. Fór aftur á sýninguna — og hló eins og geðsjúklingur. Drottinn minn dýri, ég hef aldrei lent í öðru eins.” – M.R., Reno Gazette-Journal

Sailesh sló fyrst í gegn hér á landi fyrir fimmtán árum. Hann kom aftur með hressilegt prógramm fyrir fjórum árum og segist hlakka til að hrista upp í áhorfendum enn og aftur. Hann ætlar sér að dvelja nokkra daga á Íslandi og heimsækja framhaldskóla og nokkur fyrirtæki. „Ég eignaðist góða vini á Íslandi þegar ég kom fyrst. Við höfum haldið sambandi gegnum árin og ég ætla að nota tækifærið og eyða tíma með þeim.“

Sýningar Sailesh eru komnar í sölu á www.tix.is  og er um takmarkað magn miða í boði á hverjum stað fyrir sig.

Selt er í ónúmeruð sæti á öllum sýningarstöðum og er miðaverð 6900 kr.

Tími

(Laugardagur) 20:00

Staðsetning

Höllin

Strembugötu 13

X