desember, 2018

fim27des21:00Háaloftið: SURA21:00 Háaloftið:::Tónleikar

Lesa meira

Um viðburð

Tónlistarkonan Þura Stína eða SURA mun halda tónleika í Vestmannaeyjum á Háaloftinu fimmtudaginn 27. desember. SURA gaf út sína fyrstu sólóplötu sem heitir Tíminn núna 2. nóvember. Hún mun koma fram ásamt fullu bandi á tónleikunum en Hrafnkell Örn Guðjónsson er á trommum, Bjarni Már Ingólfsson á gítar, Baldvin Snær Hlynsson á píanó, Salka Valsdóttir á bassa og í bakröddum og plötusnúðurinn Snorri Ástráðsson þeytir skífum. Tónleikarnir verða persónulegir og fullir af skemmtun en hún mun bæði flytja lög af sólóplötunni sinni sem og önnur lög sem hafa haft áhrif á söngkonuna og mótað hana í gegnum árin.

Miðasala hér:
https://tix.is/is/event/7148/sura-tonleikar-a-haaloftinu/

Tími

(Fimmtudagur) 21:00

Staðsetning

Háaloftið

X