október, 2019
lau26okt20:00Hljómsveitin BUFF fagnar 20 ára afmæli20:00 Alþýðuhúsið:::Tónleikar
Um viðburð
Buffið hefur verið frá byrjun ein vinsælasta ballhljómsveit landsins. Á þessum 20 árum hefur sveitin tekið þátt í sjónvarpsþáttum eins og Það var lagið, og Singing Bee. Gefið út
Lesa meira
Um viðburð
Buffið hefur verið frá byrjun ein vinsælasta ballhljómsveit landsins. Á þessum 20 árum hefur sveitin tekið þátt í sjónvarpsþáttum eins og Það var lagið, og Singing Bee. Gefið út fjórar breiðskífur ásamt fjölda laga á safnplötum. Sungið bakraddir á ýmsum stórtónleikum og spilað á öllum stærstu sviðum landsins.
Á þessum 20 árum hefur Buffið þó aldrei haldið tónleika með eigin efni, og er því við hæfi að gera það á afmælisárinu.
Á afmælistónleikum Buffsins munu meðlimir sveitarinnar fara í gegnum söguna í tónum og tali. Frá mörgu er að segja og má því búast við skemmtilegri kvöldstund með lögum Buffsins og öllum sögunum frá þessum 20 árum.
Meðlimir Buff á 20 ára afmælinu eru:
Einar Þór Jóhannsson
Hannes Friðbjarnarson
Haraldur V. Sveinbjörnsson
Karl Olgeirsson
Pétur Örn Guðmundsson
og Stefán Örn Gunnlaugsson.
Tími
(Laugardagur) 20:00