september, 2019

lau28sep20:30Ingi Bjarni: Tenging20:30 Safnaðarheimili Landakirkju:::Tónleikar

Lesa meira

Um viðburð

Tónlistin á plötunni Tenging er samin á síðustu tveimur árum (2016 – 2018.) Á þessu tveggja ára tímabili kannaði ég ýmsa þætti hvað varðar tónlist og tónlistarsköpun. Má þar nefna flæði, frelsi, sjálfstraust og innsæi. Við lagasmíðina efldi ég tengingu mína við tónlist og leyfði innsæinu að ráða för í stað þess að stóla á fræðilega tónlistarþekkingu.

Ég hljóðritaði plötuna ásamt hæfileikaríku tónlistarfólki sem ég kynntist í Skandinavíu. Platan er því jafnframt eins konar tenging mín við Skandinavíu – en ég stundaði mastersnám í Osló, Gautaborg og Kaupmannahöfn. Platan er gefin út af norsku plötuútgáfunni Losen Records sem hefur m.a. gefið út tónlist eftir Anders Jormin, Per Mathisen og Hildegunn Øiseth sem eru þekkt nöfn innan norrænu tónlistarsenunnar.

Hljómsveitin fagnar útgáfu plötunnar laugardaginn 28. september með tónleikum í safnaðarheimili Vestmanneyjarkirkju kl. 20:30. Miðasala fer fram á staðnum eða hér: http://bit.ly/tenging-vestmanneyjar

Ingi Bjarni Skúlason (Ísland) – píanó og tónsmíðar
Merje Kägu (Eistland) – gítar
Jakob Eri Myhre (Noregur) – trompet
Daniel Andersson (Svíþjóð) – kontrabassi
Tore Ljøkelsøy (Noregur) – trommur

Losen Records: http://www.losenrecords.no/release/tenging
Nánari upplysingar: http://www.ingibjarni.com

Tónleikaferðin er styrkt af Menningarjóði FÍH og mennta- og menningarmálaráðuneyti, Tónlistarsjóði.

Tími

(Laugardagur) 20:30

Staðsetning

Safnaðarheimili Landakirkju

X