Fylkir // 72. árg. // 1. tbl // 1. maí 2020
// 10 Fjölskylduhagir: Einhleypur. Vinnustaður: Vinn hjá Vestmannaeyjabæ, nánar tiltekið Þjónustumiðstöð Vestmannaeyja. Hvað er best við vinnuna: Ætli það sé ekki fjölbreytileikinn og ekki má nú gleyma sam- starfsfélögunum. Fallegasti staður: Verð að segja það að fallegasti staður sem ég hef komið á er innsiglingin í Vestmannaeyjahöfn á stilltum sumarmorgni, það er eitthvað við fuglagargið og bergið sem tekur á móti manni. Hefur Covid faraldurinn haft áhrif á vinnu þína og hvernig? Ekki nema þá fyrir það að við skiptum okkur í minni einingar hér innan hússins, erum þannig stofnun að við þurfum alltaf að vera til taks til að þjónusta bæjarbúa. Hvaða gildi hefur 1.maí í þínum huga? Ætli það sé ekki aðallega sú samstaða sem kristallast á þess- um degi. Mættum tileinka okkur það alla daga. Skemmtileg saga úr vinnunni: Það kemur alltaf ein upp í hugann á mér. Ætla mér ekki að nefna nein nöfn. Það er þannig að einn ónefndur sem er nú fluttur héðan var sendur með fulla skóflu af torfi upp á Haugasvæði til nota í uppgræðslu á Eldfellinu, það var svarta þoka þegar hann er sendur af stað. Svo líður dágóð stund þangað til hann kem- ur aftur niður í hús og þá er skóflan enn full. Hann er spurður hví hann hafi ekki skilað af sér torfinu, og svarið hans: Hann treysti sér ekki með það því hann fann ekki Eldfellið. Eitthvað að lokum: Bara óska öllum gæfu og góðs gengis. Sú sam- staða sem kristallast á þessum degi Flóvent Máni Theodórsson Vestmannaeyjar eru fyrst og fremst útgerðarbær og eiga langa sögu um verkamenn. Saga verbúðanna á sinn stað í sögu Vestmannaeyja og hér hefur allt byggst upp með höndum sjómanna og verkafólks. Upp- byggingin heldur áfram og þó svo störfin hafi tekið breytingum í áranna rás, þá eru verkamannastörfin enn það sem heldur skútunni gangandi. Við tókum létt spjall við verkafólk í Vestmannaeyjum.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NzUzODU=