Fylkir // 72. árg. // 1. tbl // 1. maí 2020

// 11 Laugardagsfundir Sjálfstæðisfélagsins í Vestmannaeyjum eru orðnir fastur hluti af tilverunni og hafa verið haldnir vikulega á þessu ári frá því í lok janúar. Við teljum það eina af okkar samfélagslegu skyldum, sem stjórnmálaafl, að halda úti uppbyggj- andi félagsstarfi. Hefur sú stefna verið tekin að vera að mestu með opna fræðslufundi þar sem málefni eru kynnt fundargestum. Fundirnir hafa verið fjölbreyttir þar sem fenginn hefur verið frummælandi á hvern fund með áhugaverð málefni. Skömmu fyrir samkomubann þótti okkur ekki ráðlegt að vera að stefna saman fjölda manns í Ásgarð, jafnvel þó svo fundirnir gerðu fólki gott með nærandi fundarefn- um og samveru. Voru því lögð niður funda- höld þann 14. mars og stefndi í að laugar- dagsfundir legðust af um hríð. Í vikunni á eftir kviknaði sú hugmynd að nýta þá tækni sem er til staðar til að viðhalda laugardagsfundum, en færa þá yfir í netheima. Þann 21. mars var fyrsti streymisfundurinn á vegum Sjálfstæðisfé- lagsins haldinn á fésbókarsíðu Sjálfstæðis- félagsins. Vilhjálmur Árnason þingmaður reið á vaðið og ræddi helst viðbrögð yfir- valda við Covid faraldrinum. Fundirnir hafa verið vikulega síðan þá og hefur því einungis einn laugardagsfundur fallið niður á árinu sökum þessa heimsfar- aldurs. Góð fundarsókn hefur verið á netfundina, mun betri en á hefðbundnu fundina og var þó fundarsóknin með ágætum á þá. Einnig er það hagræði að hægt er að horfa fund- ina á fésbókarsíðu Sjálfstæðisfélagsins um alla eilífð eftir að fundi er lokið. Þannig hafa fjölmargir getað horft á áhugaverð málefni þó svo fundartíminn hafi ekki hentað. Við hlökkum þó til að geta farið aftur til hefðbundins fundarforms þar sem fólk get- ur notið samveru og hinna margrómuðu veitinga í Ásgarði. Ástandið hefur þó kennt okkur að ekkert er ómögulegt og fullvíst að sú tækni, sem við höfum nú náð að tileinka okkur, mun nýtast okkur í flokksstarfinu hér eftir, enda engu meira mál að fá fundargest frá Nýja Sjálandi heldur en af Faxastígnum. Þetta gefur okkur því ótal möguleika. Það eru allir velkomnir á laugardagsfundi Sjálfstæðisfélagsins, þeir fara núna fram á fésbókarsíðu félagsins https://www.face- book.com/xdeyjar en verða færðir í Ásgarð þegar Víðir leyfir. Laugardagsfundir Sjálfstæðis- félagsins í Vestmannaeyjum Laugardagsfundirnir eru aðgengilegir á Facebooksíðu Sjálfstæðisfélagsins í Vestmannaeyjum.

RkJQdWJsaXNoZXIy NzUzODU=