Fylkir // 72. árg. // 1. tbl // 1. maí 2020
// 5 Við í Eyjum eigum að vera samhent nú eins og við vorum þá að verja hagsmuni byggðarlagsins, hvort sem um er að ræða atvinnuvegina, samgöngur, heilsugæslu, skólana og aðra opinbera þjónustu. En staðan er langt í frá vonlaus efnahags- lega hér í Eyjum. Nú þegar eru ferðaþjón- ustuaðilar farnir að auglýsa fyrir innlendan markað og er afar mikilvægt að ferðatíðni Herjólfs verði samkvæmt venjubundinni áætlun í sumar, ogþarf aðþrýsta á opinbera aðila til að svo geti orðið. Gengi krónunnar er hagstætt útflutningsatvinnugreinunum, olíuverð lágt og almenn staða hagkerfis- ins mun betri en árið 2008. Olíuverð hefur reyndar áhrif á kaupgetu viðskiptalanda okkar sem treysta á tekjur af henni, má þar nefna Nígeríu sem hefur verið aðalkaup- andi þurrkaðra fiskafurða. Það varð fólksfjölgun hér í kjölfar hruns- ins 2008 og í kjölfar þess urðu miklir upp- gangstímar. Mikið byggt og endurnýjað af fasteignum, fyrirtækin endurnýjuðu skipa- flotann og miklar tækniframfarir hafa orðið í fiskvinnslu í landi. Því erum við enn betur búin undir niðursveiflu hér í Eyjum en áður. Við sem þjóð höfum í gegnum tíðina lent í ýmsumáföllumen aldrei verið eins vel und- ir það búin efnahagslega og núna. Sam- drátturinn er djúpur og skarpur en á sama tíma á næsta ári, í síðasta lagi, ætti að vera farið að birta verulega til í heiminum, með tilheyrandi áhrifum á ferðaþjónustu og af- urðasölu fiskvinnslunnar og iðnfyrirtækja. Nokkrar væringar hafa verið innan verka- lýðs–hreyfingarinnar á landsvísu og vilja menn fara misjafnar leiðir. Vilja sumir innan hennar fara í almennar aðgerðir sem eiga aðganga jafnt yfir launafólk á landinu, sama í hvaða atvinnugrein það starfar. Sama orðræðan hefur heyrst úr herbúðum Sam- taka atvinnulífsins. En sem betur fer er meirihluti þeirrar skoðunar að þó svo að jafnvel þurfi að gera tilslakanir í sumum greinum atvinnulífsins þá er engin ástæða til að gera þær í öðrum. Enda mikið af fyrir- tækjum sem ganga afar vel og mikill upp- gangur ámörgum sviðum. Það er alls engin ástæða til að skerða kjör fólks er starfa í þeim fyrirtækjum sem með elju sinni hafa lagt grunn að velgengni þeirra. Allar líkur eru á að veiran sé ekki búin að syngja sitt síðasta og þurfum við að standa saman gegn henni á næstu misserum með ábyrgum hætti eins og við gerðum eftir að hún lét til skarar skríða hér. Við þurfum að standa þétt saman sem samfélag og styðja þá er verða fyrir búsifjum af völdum henn- ar. Þannig farnast okkur vel og munum njóta réttláts þjóðfélags sem við höfum öll byggt upp saman. Launafólk til hamingju með daginn Arnar Hjaltalín Formaður Drífanda stéttarfélags Arnar Hjaltalín formaður Drífanda stéttarfélags
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NzUzODU=