Fylkir // 72. árg. // 1. tbl // 1. maí 2020

// 6 Fjölskylduhagir: Gift Óskari Elías Óskarsyni og á 2 peyja fjallmyndarlega, Hreiðar Örn Zoega og Óskar Elías Zoega Vinnustaður: Ísfélag Vestmannaeyja Hvað er best við vinnuna: Get ekki tekið eitt atriði út, það er alltaf gaman í vinnunni Fallegasti staður: Vestmannaeyjar, ekki spurning Hefur Covid faraldurinn haft áhrif á vinnu þína og þá hvernig? Já, við bjuggust nú við að þurfa loka á ein- hverjum tímapunkti en sem betur fer ekki. Það er búin að vera hræðsla hjá mörgum en þetta hefur gengið ótrúlega vel hjá okkur, enginn smitast, við erum búin að breyta ýmsu hérna innanhús, hólfa af svæði og koma á neysluhléum, það eru allir orðnir sjóaðir í þessu. Hvaða gildi hefur 1. maí í þínum huga? Frídagur verkamanna er náttúrulega baráttudagur verkafólks um réttindi og kjör launamanna Skemmtileg saga úr vinnunni: Það sem gerist hér fer ekkert lengra. Eitthvað að lokum: Gleðilegt sumar elskurnar Baráttudagur verkafólks um réttindi og kjör Hildur H Zoega Vestmannaeyjar eru fyrst og fremst útgerðarbær og eiga langa sögu um verkamenn. Saga verbúðanna á sinn stað í sögu Vestmannaeyja og hér hefur allt byggst upp með höndum sjómanna og verkafólks. Upp- byggingin heldur áfram og þó svo störfin hafi tekið breytingum í áranna rás, þá eru verkamannastörfin enn það sem heldur skútunni gangandi. Við tókum létt spjall við verkafólk í Vestmannaeyjum.

RkJQdWJsaXNoZXIy NzUzODU=