Fylkir // 72. árg. // 1. tbl // 1. maí 2020
// 8 Fjölskylduhagir: Eiginmaður - Ísak Þór Davíðsson 2 börn – Freyja Rún og Baldur Týr Ein kanína - Sólrún. Vinnustaður: Ísfélag Vestmannaeyja. Hvað er best við vinnuna: Fólkið og að vera búin kl. 15:00. Fallegasti staður: Eyjar og bara allt Ísland. Hefur Covid faraldurinn haft áhrif á vinnu þína og þá hvernig? Já aðeins, búið að skipta okkur niður í hópa og allir mæta á sitt hvorum tíma og sitt hvorum tíma í pásum, passa þrif extra vel og vera alltaf með grímur. Hvaða gildi hefur 1. maí í þínum huga? Frí í vinnu, annars ekki neitt. Skemmtileg saga úr vinnunni: Þær eru nokkrar en ekki við hæfi að segja frá. Eitthvað að lokum: Neibb. Frí í vinnu, annars ekki neitt Silja Steinarsdóttir Vestmannaeyjar eru fyrst og fremst útgerðarbær og eiga langa sögu um verkamenn. Saga verbúðanna á sinn stað í sögu Vestmannaeyja og hér hefur allt byggst upp með höndum sjómanna og verkafólks. Upp- byggingin heldur áfram og þó svo störfin hafi tekið breytingum í áranna rás, þá eru verkamannastörfin enn það sem heldur skútunni gangandi. Við tókum létt spjall við verkafólk í Vestmannaeyjum.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NzUzODU=