Fylkir // 72. árg. // 1. tbl // 1. maí 2020

// 9 Í fyrsta skipti síðan 1923 getur íslenskt launafólk ekki safnast saman á 1. maí til að leggja áherslu á kröfur sínar. Við þessu er brugðist með út- sendingu frá sérstakri skemmti- og baráttusamkomu sem flutt verður í Hörpu að kvöldi 1. maí og sjónvarpað á Rúv (kl. 19:40). Landsþekktir tónlistarmenn, skemmtiatriði og hvatningarorð frá for- ystu verkalýðshreyfingarinnar einkenna þennan viðburð sem verður að teljast sögulegur. Meðal listamanna sem koma frameru Ragnheiður Gröndal, Bubbi Morthens, Amabadama, Jói P og Króli, Ellen Kristjáns og Auður, Jakob Birgisson uppistandari, KK og Lúðrasveit verkalýðsins. Þar sem engar verða kröfugöngurnar verður hægt að búa til sitt eigið kröfuspjald á Facebook og sýna stuðning sinn við baráttu verkalýðs- hreyfingarinnar í verki með því að merkja prófílmyndina sína 1. maí. Við hvetjum til þátttöku í baráttudeginum á Facebook og svo til áhorfs á Rúv um kvöldið. Að dagskránni í sjónvarpinu og viðburðum á samfélagsmiðlum standa eftirfarandi heildarsamtök launafólks: ASÍ, BHM, BSRB og KÍ. SNORRI MÁR SKÚLASON Deildarstjóri upplýsinga- og kynningarmála ASÍ 1. maí með öðru sniði í ár

RkJQdWJsaXNoZXIy NzUzODU=