Lögreglan í Eyjum sinnir eigendum tapaðra hluta

Talsverður fjöldi mála liggur á borði lögreglunnar í Vestmannaeyjum eftir helgina. Eitt helsta verkefni lögreglunnar í Eyjum eftir þjóðhátíð er þó að sinna fyrirspurnum vegna tapaðra hluta. Lögreglunni í Eyjum telst til að komið hafi verið upp um 11 fíkniefnamál um helgina. Þá voru 10 eignarspjöll kærð til lögreglu, 5 líkamsárásir og 5 þjófnaðir. Lögregla […]
Þetta eru engir nammipeningar

Í hvaða farvegi eru þessir 3.6 milljarðar sem Vestmannaeyjabær fékk fyrir Hitaveitu Suðurnesja ? Lokagreiðsla hefur þegar borist Vestmannaeyjabæ og Vestmannaeyjabær er nú að fara yfir stöðuna. Hvaða möguleika er verið að skoða ? Eins og gefur að skilja var höfuð áhersla lögð fjárvörslu um leið og greiðslur bárust enda mikilvægt að ávaxta féð sem […]
Þjóðhátíðarnefnd þakkar fyrir sig

Þjóðhátíðarnefnd þakkar öllum þeim fjölda sjálfboðaliða og starfsmanna, sem lagt hafa ÍBV lið, á Þjóðhátíð 2007. Það er samdóma álit allra, hvort sem um er að ræða flutningsaðila, lögreglu eða aðra þá, sem að þessu koma, að einstaklega vel hafi til tekist í ár. Síðast en ekki síst vill Þjóðhátíðarnefnd 2007, þakka öllum þeim frábæru […]
�?jóðhátíðarnefnd þakkar fyrir

Þjóðhátíðarnefnd þakkar öllum þeim fjölda sjálfboðaliða og starfsmanna, sem lagt hafa ÍBV lið, á Þjóðhátíð 2007. Það er samdóma álit allra, hvort sem um er að ræða flutningsaðila, lögreglu eða aðra þá, sem að þessu koma, að einstaklega vel hafi til tekist í ár. (meira…)
Skemmtileg stemming á Stokkseyrarbryggju

Góð stemming myndaðist á Stokkseyrarbryggju í frábæru veðri þegar hápunktur fjölskyldudaganna var á sunnudaginn, við varðeld, harmonikuspil og söng. Kvöldið endaði með stór glæsilegri flugeldasýningu á bryggjunni í umsjón Björgunarfélags Árborgar. (meira…)
Hlutur sveitarfélaga

Nú er búið að leggja blessaða álagningaskrána fram og eins og alltaf fer ákveðin umræða í gang. Í þetta skiptið hefur þó nokkur umræða farið fram um það að sveitarfélögin fá engan hlut í fjármagnstekjuskattinum. Auðvitað er það ósanngjarnt að einstaklingar skuli eingöngu borga til ríkisins af sínum tekjum. Aðilar sem greiða eingöngu bfjármagnstekjuskatt nýta […]
Níu stútar staðnir að verki um helgina

Níu ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur um helgina, einn þeirra var að auki grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna. Hraðaksturskærur voru 59 frá föstudegi að miðnætti á mánudag. Umferðareftirlit var mjög mikið um alla sýslu og voru sem dæmi tveir lögreglumenn frá höfuðborgarlögreglunni mikið á ferðinni á splunkunýjum bifhjólum. Einnig var notast við þyrlu […]
Uppgjör eftir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 2007.

Nokkur fjöldi Þjóðhátíðargesta var í Vestmannaeyjum í gærkveldi og var talsverð ölvun á tjaldsvæðinu í Herjólfsdal í nótt. Einn gisti fangageymslur lögreglu vegna ölvunar. Tjaldgestir gerðu sér að leik að kveikja í tjöldum í dalnum og er það að verða árviss hegðun þeirra að lokinni hátíðinni, enda margir sem hreinlega skilja allan sinn búnað eftir […]
Gestafjöldi líklega yfir 10 þúsund

Þegar helgin er gerð upp er ljóst að Þjóðhátíð í ár er með stærri hátíðum og gestafjöldi líklega yfir 10 þúsund. Veður var með besta móti þvert ofan í margar spár og sólin skein flesta dagana.Þetta segir í frétt frá lögreglunni í Vestmannaeyjum sem er ánægð með hvernig til tókst með skemmtanahald helgarinnar. (meira…)
Baðdagur hjá VKB

Bræðrafélagið Vinir Ketils Bónda er líklega einn besti og hugmyndaríkasti þjóðhátíðarhópur sem sögur fara af, og þeir framkvæma það sem þeim dettur í hug. Síðasta laugardag ákváðu þeir bræður að skella kari með heitu vatni fyrir utan húsið Gimli við Kirkjuveg. Með þessu var bræðrafélagið búið að koma sér upp heitum potti. Vakti þessi baðdagur […]