Jarðskjálftahrina við Selfoss

Yfir tuttugu jarðskjálftar urðu í grennd við Selfoss og Þorlákshöfn milli klukkan sex og sjö í kvöld. Skjálftarnir voru allir litlir en fundust þó sumir mjög greinilega enda upptök þeirra nálægt þéttbýli. (meira…)
Lélegt harpix og óhagstæðar vindáttir ástæðan fyrir lélegu gengi ÍBV

Sigurður Bragason, fyrirliði ÍBV er í léttu spjalli á vefnum www.handbolti.is en ÍBV mætir einmitt Stjörnunni á útivelli í kvöld. Sigurður er m.a. spurður út í ástæðuna á slöku gengi ÍBV það sem af er vetrar og ekki stendur á svari. „Lélegt harpix og óhagstæðar vindáttir,“ svarar Sigurður en viðtalið má lesa hér að neðan. […]
Skrifað undir samning við SALM í dag

Í dag var undirritaður samstarfssamningur milli eigenda fyrirhugaðrar bjórverksmiðju í Vestmannaeyjum og bruggverksmiðjunnar SALM í Austurríki. Það voru þeir Björgvin Þór Rúnarsson og Birgir Nielsen, forsvarsmenn verksmiðjunnar og Wellidte, einn af eigendum og forstjóri SALM í Austurríki sem skrifuðu undir samninginn.Björgvin Þór sagði í samtali við www.sudurland.is að hann væri í senn stoltur og svolítið […]
Skrifað undir samning við SALM í dag

Í dag var undirritaður samstarfssamningur milli eigenda fyrirhugaðrar bjórverksmiðju í Vestmannaeyjum og bruggverksmiðjunnar SALM í Austurríki. Það voru þeir Björgvin Þór Rúnarsson og Birgir Nielsen, forsvarsmenn verksmiðjunnar og Wellidte, einn af eigendum og forstjóri SALM í Austurríki sem skrifuðu undir samninginn.Björgvin Þór sagði í samtali við www.sudurland.is að hann væri í senn stoltur og svolítið […]
Skrifað undir samning við SALM í dag

Í dag var undirritaður samstarfssamningur milli eigenda fyrirhugaðrar bjórverksmiðju í Vestmannaeyjum og bruggverksmiðjunnar SALM í Austurríki. Það voru þeir Björgvin Þór Rúnarsson og Birgir Nielsen, forsvarsmenn verksmiðjunnar og Wellidte, einn af eigendum og forstjóri SALM í Austurríki sem skrifuðu undir samninginn. (meira…)
Ný rafiðnaðarverslun opnar

Fyrirtækið Ískraft opnaði um helgina rafiðnaðarverslun að Eyrarvegi 32 á Selfossi, undir sama þaki og Árvirkinn. Þar eru seld raflagnaefni í heildsölupakkningum, hentugar þeim sem starfa í iðninni eða eru að fást við stór verk, segir Jón Lúðvíksson rekstrarstjóri á Selfossi. (meira…)
Glódís og Silja sigruðu

Glódís Margrét Guðmundsdóttir, úr Þykkvabænum, og Silja Runólfsdóttir, frá Bolungavík, báru sigur úr bítum í Blítt og létt, söngkeppni nemendafélagsins Mímis á Laugarvatni. Í öðru sæti voru Regína Magnúsdóttir, Steinlaug Högnadóttir og Garðar Aron Guðbrandsson og í því þriðja rokkararnir Arnar Kári Guðjónsson og Hróðmar Sigurðsson. Alls voru flutt tólf atriði í keppninni í ár. […]
Kjálkabraut dreng með gáleysisakstri

Kona frá Selfossi var í Héraðsdómi dæmd til að greiða 100 þúsund króna sekt í ríkissjóð fyrir gáleysislegan akstur sem leiddi til þess að hún ók á ungan dreng sem kjálkabrotnaði við áreksturinn. Akstur hennar þótti hins vegar ekki nógu vítaverður til að ástæða væri til að svipta hana ökuréttindum, eins og krafist var í […]
Meintur árásarmaður í gæsluvarðhaldi
Héraðsdómur Suðurlands varð í dag við kröfu sýslumannsins á Selfossi að úrskurða karlmann, sem grunaður er um að hafa stungið mann með hníf við Hellisheiðarvirkjun um helgina, í vikulangt gæsluvarðhald, eða til nk. mánudags. (meira…)
Síðustu öruggu skiladagar jólakorta og jólapakka innanlands og utan

Pósturinn minnir landsmenn á síðustu öruggu skiladaga sendinga jólakorta og jólapakka fyrir jólin. Síðasti öruggi skiladagur til að póstleggja jólapakka til landa utan Evrópu er þriðjudagurinn 4.desember og jólakort til landa utan Evrópu er föstudagurinn 7.desember. Síðasti öruggi skiladagur á jólapökkum til Evrópu er miðvikudagurinn 12. desember og á jólakortum til Evrópu föstudagurinn 14.desember, til […]