Síðustu öruggu skiladagar jólakorta og jólapakka innanlands og utan

Pósturinn minnir landsmenn á síðustu öruggu skiladaga sendinga jólakorta og jólapakka fyrir jólin. Síðasti öruggi skiladagur til að póstleggja jólapakka til landa utan Evrópu er þriðjudagurinn 4.desember og jólakort til landa utan Evrópu er föstudagurinn 7.desember. Síðasti öruggi skiladagur á jólapökkum til Evrópu er miðvikudagurinn 12. desember og á jólakortum til Evrópu föstudagurinn 14.desember, til […]

Einn gisti fangageymslu

Frekar rólegt var hjá lögreglunni þessa viku. Skemmtanahald fór að mestu vel fram en þó gisti einn aðili fangageymslu þar sem hann hafði brotið rúðu á veitingastaðnum Lundanum með því að kasta í hana grjóti. Viðkomandi hljóp í burtu en dyraverðir á staðnum hlupu hann uppi og héldu þar til lögreglan kom og handtók hann. […]

Hraðahindranir eyðilagðar

Hraðahindrun í Biskupabúðum í Þorlákshöfn var eyðilögð af skemmdarvörgum um síðastliðinna helgi. Þetta er í annað sinn sem slíkt gerist í Þorlákshöfn með stuttu millibili en sú fyrsta var við Oddabraut. Hindranirnar samanstanda af nokkrum einingum, boltuðum niður í götuna. (meira…)

Kom færandi hendi á fæðingardeild Sjúkrahússins

Kiwanismenn heimsóttu Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja í gærdag. Erindið var ekki vegna krankleika þeirra, heldur til að færa fæðingardeild stofnunarinnar búnað til meðferðar á gulu í nýfæddum börnum, svokallaðan blossamæli og ljósarúm. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.