Eyjamenn engin hindrun fyrir Íslandsmeistarana

Valsmenn áttu ekki í teljandi vandræðum með slaka Eyjamenn í dag þegar liðin áttust við í Vestmannaeyjum í N1 deildinni. Lokatölur urðu 28:40 en staðan í hálfleik var 8:18. Valsmenn hafa verið á miklu skriði að undanförnu og eiga án efa eftir að gera harða atlögu að toppnum á nýju ári. Eyjamenn sitja hins vegar […]
Hermann enn á bekknum

Hermann Hreiðarsson verður að sætta sig við að vera á varamannabekk Portsmouth fjórða leikinn þegar liðið sækir Aston Villa heim í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en leikur liðanna hefst á Villa Park klukkan 12.45. Frakkinn Noe Parmarot heldur Hermanni utan við liðið en Parmarot tók stöðu Eyjamannsins þegar hann meiddist. Hermann var í […]
Frítt á leikinn gegn Íslandsmeisturunum

Í dag klukkan 15.00 taka Eyjamenn á móti Íslandsmeisturum í Val í N1 deild karla. Sigurður Bragason, fyrirliði ÍBV kemur á nýjan leik inn í leikmannahóp ÍBV eftir tveggja leikja bann en Sindri Haraldsson, stórskytta, er í leikbanni. Fréttir og Sparisjóðurinn hafa tekið höndum saman og ætla að bjóða öllum á leikinn enda mikið í […]
Sparisjóðurinn og Fréttir bjóða á leik ÍBV-Valur
Sparisjóðurinn og Fréttir sýna ÍBV þann velvilja, að bjóða Eyjamönnum og gestum þeirra frítt á leik ÍBV og Vals í dag kl. 15.00. ÍBV strákarnir hvetja alla, sem vettlingi valda, að mæta og styðja peyjana í erfiðum leik. (meira…)