Kvörtum bara yfir einhverju…

Það er varla hægt að lýsa því með orðum hvað maður hefur komist af mörgu hvernig fólk hagar sér í verslunum, bara með því að vinna í nokkra mánuði í Húsasmiðjunni. Það er ekki hægt að segja það nógu skýrt hvað margir eru rosalega þroskaheftir sem koma þarna niður eftir. Í fyrsta lagi er ekki […]

Ég hef reyndar alltaf frekar vilja líta á mig sem fastan fyrir heldur en að vera eitthvað grófur leikmaður

Í dag birtum við leikmannakynningu úr körfuboltanum en sá sem gefur lesendum eyjar.net upplýsingar um sjálfan sig er Baldvin Johansen. Baldvin starfar sem fjárreiðustjóri hjá Ísfélagi Vestmannaeyja en Baldvin er einn leikreyndasti leikmaður ÍBV í körfubolta. Fullt nafn: Baldvin Johnsen Fæðingarár -og staður:  11. nóvember 1976, Reykjavík. Fjölskylduhagir & foreldrar: Giftur Aldísi Gunnarsdóttur eyjamær og saman […]

70. grunnskólabörn heimsækja slökkviliðið nú á aðventunni.

Eins og undanfarin ár heimsóttu okkur 8 ára grunnskólabörn úr Hamarsskólanum til að fræðast um eldvarnir í heimahúsum. Farið var yfir þær hættur sem geta skapast af kertaskreytingum  og hvernig skuli bregðast við þeim hættum. Farið yfir þau öryggistæki á heimilum sem eru nauðsynleg eins og reykskynjarar, eldvarnateppi, slökkvitæki og einnig  þarf fjölskyldan að ræða […]

Ráðinn í menntamálaráðuneytið

Ráðinn í menntamálaráðuneytiðSigurður Sigursveinsson, fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands, tekur við starfi í Menntamálaráðuneytinu þann 1. febrúar næstkomandi. Þar mun hann vinna að verkefnisstjórn við gerð skólasamninga við einstaka framhaldsskóla. (meira…)

Slæm veðurspá fyrir morgundaginn

Stjórnendur m.s. Herjólfs hafa sent frá sér tilkynningu þar sem segir að útlit sé fyrir að skipið sigli ekki fyrri ferð sína í fyrramálið, vegna slæmrar veðurspár. Samkvæmt veðurspá belgings.is verður komið snælduvitlaust veður seinnipartinn í nótt og mun standa eitthvað fram á daginn. (meira…)

Vildi hafa lifandi gínur í verslunarglugganum sínum

Enginn miskunn er bók um lífshlaup ævintýramannsins Eyþórs Þórissonar, núverandi veitingamanns á Seyðisfirði. Hann hefur lengst af verið kvensamur og drykkfeldur en komið ótrúlega víða við. Eyþór dvaldi um nokkurra ára skeið í Vestmannaeyjum og setti sinn svip á bæjarlífið. Hann rak hér verslun, stundaði sjóinn og sitthvað fleira. Í bókinni fjallar hann um kynni […]

Vann heitan pott

Eyjamærin Sjöfn Ólafsdóttir sigraði í heitapottaleik Poulsen og Vísir.is. Dómnefnd þótti mynd Sjafnar Ólafsdóttur í Kóngsbakka í Reykjavík bera af. Hún hlýtur að verðalaunum glæsilegan heitapott frá Poulsen. Sjöfn, sem er dóttir Stellu Skaptadóttur og Ólafs Elíssonar sparisjóðsstjóra, er mikill áhugamaður um ljósmyndun og hafa myndir eftir hana hafa birst í fjölmörgum blöðum og tímaritum hér […]

Duglegir skólakrakkar

Í þeim veðraham sem verið hefur í haust er það varla nema fyrir hraustustu krakka að ganga í skólann sinn. Þessir krakkar, sem heita Arna Dögg, Óliver og Arnar Þór, nemendur í 1.ÍR og Þórey, nemandi í 4. HA, eru meðal annarra duglegra krakka sem ganga í skólann, nánast uppá hvern dag. (meira…)

Vindhviður í 49 metra í nótt

Gríðarlegt veður, enn eina ferðina, gekk yfir sunnanvert landið í nótt og víða mjög hvasst. Á Stórhöfða var 10 mínútna meðalvindur, 39 metrar á sekúndu milli kl. 1 og 3 í nótt. Á þessum tíma sló vindmælirinn ítrekað í 49 metra í mestu hviðunum. Og enn er veðurspáin vindasöm. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.