�?rlegt opnunarball

Fjölmennt var á fjörugum dansleik með Á móti sól í Hvíta húsinu á Selfossi í gærkvöldi. Skoða myndir. (meira…)

Slagsmál og tönn brotin í dyraverði

Í gærkvöldi var útskriftarball Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum haldið í Týsheimilinu. Ballið byrjaði vel en þegar leið á fór ástand versnandi og hver slagsmálin ráku annað. Á endanum komust dyraverðir og forsvarsmenn kennara að þeirri niðurstöðu að blása ballið af vegna óláta. (meira…)

Hvað lognið getur nú farið hratt yfir …

Síðan hafa hvellirnir orðið nokkuð margir og við höfum fengið hviður fyrir allan peninginn… Í dag hafa verið stöðugar fréttir af óveðrinu sem gengið hefur yfir landið. Bein útsending úr Skógarhlíðinni þar sem höfuðstöðvar björgunarsveitanna eru. Skipt í vesturbæinn, upp í Breiðholt og út á Nes. Allt að gerast, þak að fjúka, tré að brotna […]

Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna bruna

Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði nú síðdegis mann þann sem lögreglan í Vestmannaeyjum heftur haft í haldi í gæsluvarðhald til mánudags 17. desember.Maðurinn hefur verið í haldi lögreglunnar í Vestmannaeyjum síðan í gær vegna rannsóknar á brunanum í Fiskiðjunni aðfaranótt s.l. föstudags. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri hefur sagst hafa verið í húsinu skömmu áður en eldur […]

Jólatónleikar í Landakirkju í kvöld

Jólatónleikar Kórs Landakirkju verða í kvöld í Landakirkju. Einsöngvarar með kórnum eru Sigrún Hjálmtýsdóttir og Helga Jónsdóttir og stjórnandi verður Guðmundur H. Guðjónsson. Tónleikarnir hefjast kl 20:30.     (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.