Hver að verða síðastur til að taka þátt í Peyjabankanum

Eins og undanfarin ár setja strákarnir í handboltaliði ÍBV af stað Peyjabankann svokallaða þegar stórmót fer fram í handbolta. Evrópumótið hefst einmitt í dag og fyrstu leikirnir fara fram klukkan fimm. Um leið lokar Peyjabankinn og því fer hver að verða síðastur til að skrá sig. Sigurður Bragason, fyrirliði ÍBV hefur yfirumsjón með bankanum og […]

Elding olli tjóni uppi á Klifi

Það brá mörgum í brún um hádegisbil í gær þegar eldingu laust niður í Klifið sem gnæfir yfir höfnina í Vestmannaeyjum með tilheyrandi drunum. Eftirköstin komu fljótlega í ljós en nokkur fyrirtæki á hafnarsvæðinu eru símasambandslaus. Þá urðu skemmdir uppi á Klifi en þar er móttökubúnaður og útsendingabúnaður fyrir m.a. sjónvarp, útvarp og fleira. Unnið […]

Við þökkum lífgjöfina 23. janúar 1973

Aldrei má það gleymast meðan land byggist það kraftaverk sem varð þá nótt þegar jörðin opnaðist austan við Kirkjubæi og jarðeldar ógnuðu lífi og byggð hér í Eyjum. Þegar röð atvika verður til þessa að allir bjargast þessa ­örlaganótt. Það er bræla allan daginn þann 22. janúar, allur flotinn í höfn, svo lygnir skyndilega um […]

Stofnun �?ekk­ingarseturs

Á fundi bæjarráðs var tekin fyrir ósk starfshóps um eflingu há­skóla- og rannsóknastarfsemi í Vest­mannaeyjum, um að Vestmannaeyjabær gerist stofn­að­ili að Þekkingarsetri Vest­manna­eyja með 300 þúsund kr. stofnframlagi. Bæjarráð samþykkir að gerast stofnaðili að Þekkingarsetri Vest­mannaeyja með 300 þúsund kr. stofnfram­lagi og hvetur aðra framsækna aðila til þátttöku. (meira…)

Gangarannsóknir, ný stefna í skipalyftumálinu og sanngjarnari gjaldskrá Herjólfs

Þrír stjórnmálaflokkar, stjórnar­flokk­arnir Samfylking og Sjálf­stæðis­flokkur og Frjálslyndir, sem eru í stjórnarandstöðu með Vinstri grænum og Framsókn, héldu fundi hér á fimmtudag, laugardag og sunnu­dag. Víða var komið við og það sem mesta athygli vakti var ný staða í málum Skipalyftunnar, loforð fjármálaráðherra um fjármagn til að ljúka rannsóknum vegna ganga og upplýsingar samgöngu­ráðherra um […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.