Samið við Brassana

Þrír Brasilíumenn munu leika með ÍBV í fyrstu deild karla í sumar en þeir hafa verið á reynslu hjá félaginu undanfarnar vikur. Þetta staðfesti Huginn Helgason í knattspyrnuráði ÍBV við Fótbolta.net í dag. Verið er að ganga frá lausum endum áður en félagaskiptin ganga í gegn en leikmennirnir hafa leikið nokkra æfingaleiki með Eyjamönnum að […]
Fyrsta loðnan á leið til Eyja

Fyrsta loðnan sem landað verður í Vestmannaeyjum er á leiðinni en skip Vinnslustöðvarinnar, Sighvatur Bjarnason Ve. er á heimstíminu. Í nótt náði áhöfnin 600 tonnum í aðeins tveimur köstum en Magnús Jónasson, fyrsti stýrimaður um borð segir þá hafa séð nóg af loðnu á miðunum út af Reyðarfjarðardýpi. (meira…)
Ágústa með þrenn verðlaun og Selfossmet

Frjálsíþróttakonan Ágústa Tryggvadóttir, Umf. Selfoss, vann til tveggja silfurverðlauna og einna bronsverðlauna á meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fram fór í Frjálsíþróttahöllinni um síðustu helgi. M.a. bætti hún 13 ára gamalt Selfossmet Sigrúnar Hreiðarsdóttur í kúluvarpi kvenna.Ágústa kastaði kúlunni 12,56 m og bætti sinn fyrri árangur um hvorki meira né minna en 88 sm. […]
Snæfell skrefi á undan

Hamar heimsótti Snæfell í Stykkishólm sl. sunnudag í Iceland Express-deild karla. Snæfellingar voru feti framar allan tímann og forskot þeirra jókst jafnt og þétt allan leiktímann. Lokatölur voru 98-80. (meira…)
Ekkert um gangarannsóknir á borði samgöngunefndar

Bjarni Harðarson, alþingismaður spurði Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, formann samgöngunefndar, um stefnu stjórnarflokkanna í samgöngumálum Vestmannaeyinga í fyrirspurnatíma til alþingismanna á þriðjudag. „Ég vildi vita hvort einhverra breytinga væri að vænta vegna nýlegrar yfirlýsingar fjármálaráðherra á fundi í Vestmannaeyjum um að ljúka þyrfti rannsóknum vegna jarðgangagerðar. Í framhaldinu mættu fulltrúar Ægisdyra á fund samgöngunefndar þar sem […]