Landbúnaðarsýning 2008
Í tilefni af 100 ára afmæli Búnaðarsambands Suðurlands 2008 verður haldin landbúnaðarsýning á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 22. til 24. ágúst 2008. Um verður að ræða fjölbreytta sýningu, að segja má nokkurs konar þróunar- og tæknisýningu auk þess að henni er ætlað að kynna hlutverk og stöðu landbúnaðar í þjóðfélaginu. (meira…)
Brugghúsið ehf. kynnir bruggvél fyrir sveitahótel og veitingastaði
Á dögunum var ‘Beint frá býli’ boðið í heimsókn til Brugghússins ehf. sem er að hefja innflutning á sérhæfðum bruggvélum sem verða leigðar út til sveitahótela og veitingastaða. Þannig er hægt að bjóða heimagerðan bjór í mjög háum gæðaflokki með lítilli fyrirhöfn. Hægt er að velja um 25 tegundir af bruggi og einnig hægt að […]
Undanúrslitaleikur gegn Stjörnunni í Eyjum í dag

Unglingaflokkur karla leikur í dag einn mikilvægasta leik tímabilsins þegar liðið mætir Stjörnunni í undanúrslitum bikarkeppninnar. Leikurinn hefst klukkan 15.30 og fer fram í íþróttamiðstöðinni. Strákarnir óska eftir því að allir þeir sem vettlingi geta valdið mæti á leikinn og styðji sitt lið til sigurs. (meira…)
Ragnheiður Gröndal með tónleika á Stokkseyri
Ragnheiður Gröndal verður með tónleika á Draugabarnum Stokkseyri næstkomandi föstudagskvöld, þann 29. febrúar, og hefjast þeir kl. 21. Megum við eiga vona á frábærum tónleikum enda er Ragnheiður ein af okkar bestu söngkonum í dag. (meira…)
Mæling náðist á vestari loðnugönguna

Fiskifræðingum um borð í Árna Friðrikssyni tókst í gærkvöldi að mæla vestari loðnugönguna, sem nú er úti af Skógarsandi, austan við Vestmannaeyjar. Til stóð að fjögur loðnuskip, sem taka þátt í leitinni og mælingunni, köstuðu á loðnuna til að meta torfuna enn betur, en veður versnaði skyndilega í nótt og bíða skipin þes nú að […]