Ráðherra kveinkar sér

Innanflokksvandi Sjálfstæðisflokksins kemur okkur sem erum utan þess félags lítið við. En þegar meinsemdir landsstjórnarinnar stafa af sama vandamálinu er nauðsynlegt að sjá samhengið. Forsætisráðherra landsins var í Silfursviðtali um á dögunum og opinberaði þar þá ákvarðanatökufælni sem skaðar nú bæði flokk hans og efnahag landsins. (meira…)

Tónar við hafið í �?orlákshöfn

Næstu tónleikar Tóna við hafið verða í Þorlákskirkju miðvikudaginn 5. mars. Það er Kammersveit Reykjavíkur sem mætir í Þorlákshönfnina að þessu sinni og flytur verk eftir Ludwig van Beethoven, Þorkel Sigurbjörnsson og Wolfgang Amadeus Mozart. (meira…)

Norðurljósablúsinn byrjaði í gær

Blúshátíðin Norðurljósablús hófst gærkvöld með tónleikum hljómsveitarinnar ADHD 800. Sveitin var stofnuð sérstaklega að þessu tilefni og spilaði m.a. nokkur lög sem voru samin sérstaklega fyrir Norðurljósablús 2008. Grunnskólanemar á Höfn tóku forskot á blússæluna því sveitin spilaði fyrir krakkana í Sindrabæ í gærdag. (meira…)

Bjartsýnn á meiri loðnukvóta

Friðrik Jón Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landsambands íslenskra útvegsmanna, kveðst vera mjög bjartsýnn á að loðnukvótinn verði aukinn enn meira. Hann segir að meiri kvóta þurfi til að ná þeim afla sem flotinn ráði við á meðan loðnan sé veiðanleg. (meira…)

Kostnaður við sundlaugina mun hærri en áætlað var

Kostnaður við endurbætur sundlaugarinnar á Kirkjubæjarklaustri verður 25-30% hærri en áætlað var í upphafi. Stefnt er að því að verkinu ljúki um miðjan mars en sundlaugin hefur verið lokuð í rúmt ár. Endanlegur kostnaður verður á bilinu 160-170 milljónir króna. Bjarni Daníelsson, sveitarstjóri, segir að allmargir kostnaðarliðir verksins hafi hækkað. „Það er ekkert eitt sérstaklega […]

Faldo-ævintýrið tefst

Metnaðarfullar áætlanir um uppbyggingu heimsklassa golfvallarsvæðis á söndunum við Þorlákshöfn sem fyrst voru kynntar árið 2005 hafa tafist von úr viti en þær áætlanir gerðu ráð fyrir að slíkur völlur yrði tilbúinn haustið 2008. Þrátt fyrir að engar framkvæmdir hafi enn átt sér stað er verkefnið á nokkrum rekspeli. Hönnun vallarins og umhverfis hans er […]

Grafa valt á hliðina á Hamarsvegi

Grafa valt útaf Hamarsvegi nú í morgun en ökumann sakaði ekki. Samkvæmt þeim upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum er vélin í eigu Vinnslustöðvarinnar og var ökumaðurinn með skófluna uppi til öryggis vegna umferðarinnar sem á móti kom. Blindhríð var þegar grafan valt útaf en þegar skóflan er upp, minnkar stöðuleiki vélarinnar. (meira…)

Góð loðnuveiði við Vestmannaeyjar

Góð loðnuveiði eru nú austan við Vestmannaeyjar, en fá skip eru á miðunum þar sem þau fylla sig á skömmum tíma og eru ýmist á landleið til löndunar, eða á útleið eftir löndun. Þá lóna nokkur frystiskip í grennd við miðin og sækja sér skammta í fyrstinguna eftir þörfum. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson heldur áfram loðnuleit […]

Hlaupársdagur 29. febrúar

Hlaupár er fjórða hvert ár nema aldamótaár. Nafnið er sennilega komið úr fornensku og dregið af því að dagsettar hátíðir hlaupa þá yfir einn vikudag milli ára. Hlaupársdagur var 24. febrúar hjá Rómverjum. Á Íslandi var Matthíasmessa sama dag einnig kölluð hlaupársmessa en hlaupársdeginum skotið inn þann 25. Á síðari öldum hefur 29. febrúar þó […]

�?jóðhræðihátíð á Stokkseyri

Þjóðhræðihátið verður haldin í þjóðfræðimiðstöðinni í Lista og menningarverstöðinni á Stokkseyri laugardaginn 1. mars kl. 16. í tilefni af voropnun Draugasetursins og Álfa, trölla og norðurljósa safnsins. Frábær tilboð verða í söfnin alla helgina (Kaupir miða í annað safnið og færð frítt í hitt) Fram koma á hátíðinni: (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.