Sætur útisigur á ÍR
Selfyssingar náðu loksins sigri á ÍR-ingum í þriðju viðureign liðanna í 1. deild karla í vetur. Mjótt var á mununum en Selfyssingar unnu að lokum með einu marki, 31-32. Leikurinn byrjaði rólega en ÍR-ingar höfðu undirtökin framan af og náðu mest þriggja marka forskoti. Selfyssingar komu til baka og minnkuðu muninn í 18-17 fyrir leikhlé. […]
50 ára afmælisárshátíð
Í tilefni árshátíðar og 50. starfsárs Laugalandsskóla verður vegleg hátíð á föstudag og laugardag. Nemendur hafa sem fyrr keppst við að undirbúa skemmtiatriði en þau eru óvenju fjölbreytt og vönduð í ár vegna tímamótanna. (meira…)
Sökuð um að kúga fram virkjun
Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, sakaði Landsvirkjun á Alþingi í dag um fjárkúgun, með því að beita vinsælu máli, uppbyggingu netþjónabúa, til að koma áfram óvinsælu máli, virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Mörður vakti athygli á því að haft er eftir Þorsteini Hilmarssyni, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, í Fréttablaðinu í dag að það sé ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir raforkusölu […]
FSu í góðri stöðu eftir sigur á Hetti
Línur eru farnar að skýrast eftir leikina í 1. deild karla í körfubolta sem fram fóru sl. þriðjudagskvöld. Breiðablik sigraði Val og tryggði sér sæti í úrvalsdeild. Á sama tíma lagði FSu Hött á Egilsstöðum og fóru því tveimur stigum upp fyrir Val. FSu er þá nánast búið að tryggja sér 2. sætið og heimaleikjaréttinn […]
Skólahlaup HSK haldið að Laugarvatni 9. apríl n.k.

Hið árlega skólahlaup HSK verður haldið á Laugarvatni 9. apríl nk. og hefst kl. 10:00. Sama fyrirkomulag verður á mótinu og á undanförnum árum, þ.e. keppt með fyrirkomulagi sem nefnist ,,Fjör í frjálsum.” (meira…)
Tillögur frá héraðsþingi HSK
Á héraðsþingi HSK, sem haldið var í Þorlákshöfn 23. febrúar sl., störfuðu 5 nefndir sem fjölluðu um ýmis mál er varða hreyfinguna. Alls voru 25 tillögur samþykktar á héraðsþinginu og margar þeirra tengdust mótahaldi HSK og heildarstigatöflu. Samþykkt var ný reglugerð um héraðsmót í handknattleik, og þá var samþykkt að bæta við héraðsmótum inn á […]
�?tlaði gangandi til Reykjavíkur
Aðfaranótt laugardags var leitað aðstoðar lögreglu vegna rúmlega tvítugs manns sem rokið hafði út úr orlofshúsi við Úlfljótsvatn í Grafningi og ætlaði að fara fótgangandi til Reykjavíkur illa klæddur og ölvaður. Björgunarsveitir voru ræstar út en þegar lögreglan fann manninn á þjóðveginum við Hlíð var aðstoð björgunarsveita afturkölluð. (meira…)
Grétar sýnir í Listagjánni
Grétar Þ. Hjaltason sýnir í Listagjá Bæjar-og héraðsbókasafnsins í mars. Þetta eru myndir unnar með blandaðri tækni og myndefnið sótt í Selfoss og nánasta umhverfi. Grétar hefur áður haldið einkasýningar s.s. í Eden í Hveragerði. Þetta er sölusýning. (meira…)
Er okkar vænst?

Myndlistarkonurnar Borghildur Óskarsdóttir og Sigríður Melrós Ólafsdóttir sýna verk sín á nýrri sýningu í Listasafni Árnesinga. Við fyrstu sýn virðast verk þeirra eiga fátt sameiginlegt, enda eru þær af sitt hvorri kynslóðinni og hafa unnið með ólík efni út frá ólíkum forsendum án þess aðvita mikið hvor af annarri. En þegar verkum þeirra er teflt […]
Gestir með fíkniefni á Litla Hrauni
Mjög mikið af fíkniefnum og sprautum fannst á gestum á Litla-Hrauni í dag. Lögreglulið á Selfossi var kallað til eftir að hundur fangelsisins varð þess var, að ekki var allt með felldu. Fangelsisyfirvöld hafa að undanförnu tekið á fíkniefnamálum fanga og hert mjög eftirlit í fangelsinu. Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri, segir talið að sé að efnin […]