Fimm í röð hjá Margréti Láru

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði sitt 30. mark fyrir A-landslið Íslands í gær þegar íslenska liðið lagði það pólska, 1:0, á Algarvemótinu í Portúgal. Margrét Lára hefur nú skorað í fimm landsleikjum Íslands í röð og hún hefur náð að koma boltanum í net andstæðinganna í 10 af síðustu 12 landsleikjum Íslands. (meira…)

Yngvi ristarbrotnaði gegn Breiðablik

Um síðustu helgi mættust Breiðablik og ÍBV í deildarbikarnum þar sem Breiðarblik sigraði 7 – 0. Í leiknum varð Yngvi Borgþórsson fyrir hnjaski og verður í gifsi næstu 10 daga, en eftir það fer hann í endurmat um hvert framhaldið verður hjá honum. Bein í ristinni brotnaði. (meira…)

Fjórir lækkaðir í tign

Það virðist hafa komið flatt upp á yfirmenn Herj­ólfs þegar nýr skipstjóri var kynntur fyrir þeim á mánudaginn. Er það þriðji skipstjórinn sem kemur úr röðum Eimskipsmanna. Um leið færðust fjórir yfirmenn, sem allir eru úr Eyjum, niður í starfi. Fram­kvæmda­stjóri hjá Eimskip segir að Herjólfur sé nú hluti af stærri heild og að eðlilegt […]

Nýr golfvöllur við Kríuna milli Eyrarbakka og Stokkseyrar

Bæjarráð Sveitarfélagsins Árborgar í morgun: Svohljóðandi tillaga bæjarfulltrúa B, S og V lista var lögð fram: Bæjarráð samþykkir að bjóða Golfklúbbi Selfoss land undir nýjan 18 holu golfvöll á svæðinu á milli Eyrarbakka og Stokkseyrar austur af Kríunni, en verið er að ganga frá landaskiptum á milli ríkisins og sveitarfélagsins, á því svæði. Þá samþykkir […]

Gunnar Heiðar með mark gegn Real Madrid

Það getur stundum verið ótrúlegt að sjá hvað menn leggja á sig fyrir myndbönd sem dreift er á netinu en eitt stórfurðulegt myndband hefur nú verið sett á YouTube vefsíðuna þar sem Gunnar Heiðar Þorvaldsson framherji íslenska landsliðsins skorar gegn Real Madrid. Líklega er um að ræða tilfinningu sem er algjör draumur fyrir knattspyrnumann að […]

Sigurður Ari með stórleik

Sigurður Ari Stefánsson átti sannkallaðan stórleik með liði sínu, Elverum í norsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þegar liðið tók á móti Runar. Lokatölur urðu 30:30 og skoraði Sigurður Ari þriðjung marka síns liðs eða tíu talsins og tryggði sínu liði jafntefli þegar tæpar tvær mínútur voru eftir af leiknum. Á vefsíðunni handbolti.is er greint frá því […]

Lögreglustöðin í Reykjavík verði seld

Æskilegt væri að Ríkissjóður seldi Lögreglustöðina við Hlemm og nýtti andvirðið í að reisa nýjar höfuðstöðvar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu ásamt aðstöðu til að hýsa fanga til skamms tíma. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.