Opnar Volcano Café í Drífanda

Nú er unnið hörðum höndum að endurbótum á húsnæði þar sem Drífandi bar var áður til húsa á horni Strandvegar og Bárustígs. Björgvin Þór Rúnarsson hefur tekið húsnæðið á leigu og ætlar að reka þar kaffihúsið Volcano Café. Staðurinn verður mun stærri en Drífandi var, nánast öll jarðhæðin verður tekin undir hinn nýja stað og […]
Taka á móti Víkingum í dag

ÍBV tekur á móti Víkingi frá Reykjavík í dag á Hásteinsvellinum en leikur liðanna hefst klukkan 14.00. Eyjamenn vilja sjálfsagt næla sér í þrjú stig enda er hlaupin nokkur spenna í toppslaginn eftir leiki gærkvöldsins þar sem Stjarnan tók Selfoss hreinlega í kennslustund og sigraði 6-1 hvorki meira né minna. ÍBV er sem fyrr á […]
Gestahús úr Keikókvínni

Keikókvíin hefur verið sem þyrnir í augum margra þar sem hún liggur undir skemmdum í Klettsvíkinni eða alltént það sem eftir er af kvínni. Líklega var síðasti nytsamlegi hlutur kvíarinnar fjarlægður nú á miðvikudag þegar hópur manna flutti hús Keikó kvíarinnar í land en húsið mun fá algjörlega nýtt hlutverk á næstunni. (meira…)