Sýning Regínu Guðjónsdóttur í Listagjá Bæjar-og héraðsbókasafnsins í september

Látið blómin tala er sýning septembermánaðar í Listagjánni.Regína Guðjónsdóttir frá Eyrarbakka heldur sýningu á blómamyndum sem eru málaðar með akrýllitum. Regína rekur Gallerý Regínu við Eyrargötu 36 á Eyrarbakka, en þar er að finna fjölbreytt handverk sem hún hefur málað og unnið. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga. Sýningin í Listagjá […]

Sextíu prósent aukning á bjórútflutningi

Bjórinn Skjálfti, sem hefur verið seldur á Íslandi um skeið, er nú að leggja í landvinninga þar sem hafinn hefur verið útflutningur á honum til Danmerkur. Bjórinn mun koma á markað eftir helgi í verslunum Magazin Du Nord í Kaupmannahöfn. Þá mun COOP verslunarkeðjan í Danmörku selja jólabjór sem framleiddur verður hjá Ölvisholt Brugghús í […]

Af óförum annarra

Helgin er framundan og liklegt að margir létti lund með einum eða öðrum hætti. Að hafa gaman að óförum annarra eða sérkennilegum háttum, er eitthvað sem er í mannlegu eðli. Hér eru nokkur myndbrot af slíkum óförum. (meira…)

Telur sæstrengi frekar vernda hafsbotninn við Surtsey

Deilt hefur verið um þá ákvörðun að leggja sæstrengi í gegnum friðlandið við Surtsey. Jafnvel talað um að hún verði tekin af Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Guðmundur Gunnarsson framkvæmdastjóri Farice telur litlar líkur á því. Hann bendir á að strengirnir Danice og Greenland connect liggi aðeins í gegnum smá horn á hinum friðlýsta hafsbotni við eyna. […]

Viðkomubrestur fjórða árið í röð

Ljóst er að viðkomubrestur hefur orðið í lundastofninum í Vestmannaeyjum fjórða árið í röð. Útlit er fyrir að mjög lítið verði um pysju í ár og að hún komi mjög seint. Þær pysjur sem enn eru lifandi í holunum eru mjög litlar og óvíst hvort þær lifa. Ástæðan er sú að lundinn hefur fundið mjög […]

Brúarhlaupið fer fram á morgun laugardaginn 6. september

Brúarhlaupið fer fram á morgun laugardaginn 6. september. Allir hlauparar og hjólreiðamenn verða ræstir á Ölfusárbrú. Hjólreiðar hefjast kl. 11:00, hálfmaraþon kl. 11:30 og aðrar vegalengdir kl. 12:00. Vegalengdir : (meira…)

Fyrstu A-landsliðskonur Hamars í körfuknattleik

Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik er að keppa í Evrópukeppninni um þessar mundir og mættu þær liði Slóvena 3. september. Íslensku stelpurnar töpuðu 69 – 94 en 16 stiga munur var í hálfleik þeim slóvönsku í vil. Þetta er þriðji leikur íslensku stelpnanna í keppninni og jafnframt síðasti heimaleikurinn en síðustu tveir leikir liðsins fara fram […]

Enn vantar skilti í Reynisfjöru

Sveitarstjóri Mýrdalshrepps segir nauðsynlegt að setja skýr lög eða reglur um það hver eigi að setja upp viðvörunarskilti á hættulegum ferðamannastöðum. Unnið er að því að hanna viðvörunarskilti fyrir Reynisfjöru í Mýrdal. Þrír ferðamenn voru hætt komnir um síðustu helgi í Reynisfjöru þegar þeir óðu út í sjó til að reyna að bjarga höfrungi sem […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.