Hápunktur Ljósanætur í kvöld
Hápunktur Ljósanætur í Reykjanesbæ er í kvöld. Hátíðin hefur gengið vel það sem af er og hafa fleiri gestir sótt hátíðina það sem af er en undanfarin ár. Fólk er beðið um að leggja bílum sínum við Reykjaneshöll eða Njarðvíkurvöllinn. Þaðan er svo strætó inní bæinn á korters fresti. Ljósanótt var sett í 8. sinn […]
1014 nemendur í dagskóla
1014 nemendur voru skráðir í dagskóla föstudaginn 29. ágúst en við þann dag verður nemendafjöldi í upphafi annar miðaður samkvæmt reglum ráðuneytis menntamála. Tveir nýir kennarar starfa nú við skólann það eru Kristinn Björnsson sem kennir spænsku og Ingibjörg Erlingsdóttir sem kennir tónmennt í stundakennslu á starfsbraut. (meira…)
Septembertónleikar í Selfosskirkju
2. september s.l. hófust árlegir sept.-tónleikar í Selfosskirkju. Þá spilaði Jörg E. Sondermann, organisti Selfosskirkju, orgelverk eftir J. S. Bach, F. fram Mendelssohn, Bartholdy og fleiri. 9. september kemur Tómas Guðni Eggertsson ásamt Kór Grindavíkurkirkju, (meira…)
Kveikt í Keikókvínni í nótt
Kveikt var í Keikókvínni svokölluðu, sem er í Klettsvík, í nótt. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum sigldi hafsögubáturinn Lóðsinn að kvínni og slökkti eldinn, en slökkvistarfið gekk greiðlega. Ekki var um mikinn eld að ræða. Að sögn lögreglu er ljóst að einhver hefur haft nokkuð fyrir því að kveikja eld í kvínni enda þurfa menn […]
Tveir 16 ára strákar teknir með hass á Selfossi í nótt

Tveir 16 ára drengir voru teknir með fíkniefni undir höndum á Selfossi í nótt. Að sögn lögreglunnar voru drengirnir teknir um fjögurleitið út á götu en þeir voru greinilega undir áhrifum fíkniefna. Í fórum þeirra fundust nokkur grömm af hassi. Foreldrar beggja voru kallaðir til á lögreglustöðina og voru þeir viðstaddir yfirheyrslur yfir drengjunum en […]
Gistinóttum fjölgar
Gistinætur á hótelum í júlí voru 201.500. Í fyrra voru þær 196.800 og því er aukning um rúm 2 prósent. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar sem tekur upplýsingarnar saman ár hvert. Gistinótum fjölgaði í öllum landshlutum nema á höfuðborgarsvæðinu þar sem fjöldi þeirra stóð í stað á milli ára. Gistinóttum fjölgaði mest á Austurlandi, […]
Selfyssingar unnu sinn riðil og hefja úrslitakeppni um helgina.
Strákarnir í 3. flokk Selfoss í knattspyrnu eru komnir í forkeppni úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Strákarnir unnu sinn riðil, og þar urðu nágranar okkar úr ÍBV í 2. Sæti og komast því líka áfram. Selfyssingar leika við Fjölni á Selfossvelli í dag laugardaginn 6. Sept kl 15.15. Ef strákarnir vinna þennan leik fá þeir auka leik […]