Séra Gunnar Björnsson ákærður
Ríkissaksóknari hefur í dag gefið út ákæru á hendur Gunnari Björnssyni sóknarpresti á Selfossi. Alls bárust lögreglu og ákæruvaldi fimm kærur vegna meintra brota Gunnars en áður hefur verið fjallað um mál Gunnars í fjölmiðlum, samkvæmt tilkynningu frá ríkissaksóknaraembættinu. Ákært er vegna tveggja málanna en þrjú voru felld niður þar sem þau töldust ekki líkleg […]
Ekið á �?seyrarbrú
Kona sem grunuð er um ölvun ók bíl sínum á handrið Óseyrarbrúar í nótt, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi. Konan slapp ómeidd, en bíll hennar skemmdist talsvert og var óökufær eftir. Lítið tjón varð á handriðinu. Konan var handtekin og gistir fangageymslur á Selfossi. (meira…)
ÍBV leikur í �?rvalsdeildinni næsta sumar!!!

ÍBV er aftur komið í hóp þeirra bestu í íslensku knattspyrnunni. Í kvöld sigruðu þeir KS/Leiftur á Siglufirði 1-0 með marki Atla Heimissonar eftir um hálftíma leik. Og þar sem Selfoss tapaði kvöld fyrir Fjarðarbyggð, hefur ÍBV liðið þar að auki tryggt sér efsta sætið í 1. deild þótt það eigi eftir að leika tvo […]
ÍBV upp, Selfoss niður í 3. sæti og Stjarnan komin í 2. sætið
Heil umferð fór fram í 1. deild karla í kvöld. ÍBV hefur tryggt sér sæti í Landsbankadeild karla eftir 0-1 sigur á KS/Leiftri og með sigrinum tryggðu þeir sér einnig sigur í Landsbankadeildinni. Njarðvík féll með tapi gegn Leikni. Stjarnan komst í 2. sætið með sigri á KA á sama tíma og Selfoss tapaði á […]
Vel æfðir rassvöðvar

Það er með ólíkindum hvað fólki getur dottið í hug. Hér er myndband um japanska konu sem hefur greinilega sperrt rassinn nokkrum sinnum. Og nú er sú fimi hennar orðið sýningaratriði og vekur mikinn fögnuð eins og heyra má. (meira…)
Eyjamenn geta tryggt sér úrvalsdeildarsæti

ÍBV getur í kvöld tryggt sér sæti í úrvalsdeild þegar liðið sækir KS/Leiftur heim á Siglufjörð. Sigur myndi gulltryggja sætið en líklega myndi eitt stig einnig duga til. ÍBV er sem stendur þremur stigum á undan Selfyssingum, sem sitja í öðru sæti með 43 stig en Stjarnan er skammt undan með 41 stig. Bæði Stjarnan […]
Landsliðið eins vel undirbúið og hægt var

Það var okkur landsliðsmönnum mikil vonbrigði að ná ekki fram hagstæðum úrslitum í landsleiknum í síðastliðinn miðvikudag gegn Skotum á Laugardalsvelli. Við höfum allir sem einn lagt okkur fram um að ná árangi innan vallar og hið sama hafa þjálfarar og starfsmenn landsliðsins gert sem og knattspyrnusambandið. Félagi minn í landsliðinu, Grétar Rafn Steinsson, lét […]
Spenna á toppi og botni
ÍBV og Selfoss geta í kvöld tryggt sér sæti í Landsbankadeild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð en næst síðasta umferð 1. deildar fer fram síðdegis. ÍBV leikur gegn KS/Leiftri á útivelli en ÍBV er með 46 stig en liðið á þrjá leiki eftir á meðan önnur topplið eiga aðeins tvo leiki eftir. Selfoss er […]
Tvö pípuorgel í smíðum á Orgelverkstæði Björgvins Tómassonar
Tvö pípuorgel eru nú í smíðum á Orgelverkstæði Björgvins Tómasonnar á Stokkseyri sem er eina orgelverkstæði landsins. Annað er orgel í Félagsheimili frímúrara í Hafnarfirði og hitt er orgel í Blönduóskirkju. Þetta eru orgel númer 30 og 31 sem verskstæði hefur smíðað frá upphafi. Orgel frá Orgelverkstæði Björgvins eru í öllum kirkjum við Suðurströndina svo […]
Landbúnaður í kröggum
Fjármagnskostnaður ætlar allt lifandi að drepa, sagði Einar K. Guðfinnsson landbúnaðarráðherra í utandagskrárumræðum á Alþingi í gær og taldi hvorki landbúnað né annað atvinnulíf geta þrifist við þessar aðstæður. Hafði hann áhyggjur af stöðu landbúnaðar og bætti við að ná þyrfti tökum á efnahagslífinu þannig að Seðlabankinn gæti lækkað vexti. (meira…)