Íslandspóstur bætir í landflutninga

Íslandspóstur ætlar að færa út kvíarnar og hefja sókn á sviði landflutninga. Tíu ný pósthús verða reist á landsbyggðinni og sex önnur endurbætt til að geta sinnt nýjum verkefnum betur. Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, segir gríðarlegar rekstrarbreytingar hafa orðið hjá fyrirtækinu síðastliðin tíu ár. Aukin sókn í landflutningum miði að því að búa fyrirtækið undir […]

�?gönsku strákarnir áfram hjá ÍBV

Úgönsku leikmennirnir Andrew Mwesigwa og Augustine Nsumba hafa framlengt samninga sína við ÍBV. Báðir leikmennirnir spiluðu stórt hlutverk í frábærum árangir ÍBV í sumar og eru mikilvægir hlekkir í liðinu. Andrew hefur verið hjá ÍBV síðan 2006 og hefur því sitt fjórða tímabil með ÍBV á næsta ári. Augustine Nsumba, eða Gústi kom til félagsins […]

Svakaleg­asta Lunda­ball aldarinnar í aðsigi

Nú liggur það fyrir að stærsta, flottasta og glæsilegasta Lunda­ball sem haldið hefur verið á hinni fögru Heimaey er orðin stað­reynd. Jú, það er rétt Helliseyjar­lundaballið fer að hefjast. Herlegheitin hefjast á laugar­dags­kvöld næstkomandi og stað­urinn er Höllin. Við vitum að Lundaböll sl. 6 ár hafa verið dálítið þung og jafnvel þvingandi. En nú verður […]

Los Angeles með rétt til að semja við Margréti Láru

Landsliðskonan Margrét Lára Viðarsdóttir gæti verið á leið til Los Angeles til að leika þar knattspyrnu í nýrri amerískri atvinnudeild á komandi keppnistímabili. Los Angeles fékk í gærkvöld réttinn til að semja við Margréti Láru en þá völdu liðin sjö sem skipa deildina á fyrsta ári fjóra leikmenn hvert úr hópi bestu knattspyrnukvenna heims. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.