Guðjón framlengir um tvö ár

Miðjumaðurinn knái, Guðjón Ólafsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við ÍBV. Guðjón sem er 21 árs hefur verið viðloðandi meistaraflokk félagsins undanfarin ár en varð fyrir því óláni nokkrum dögum fyrir fyrsta leik í fyrra að meiðast illa og missa af öllu tímabilinu. (meira…)

Almannavarnarnefndin í Eyjum hefur ekki fundað vegna eldsumbrotanna

Almannavarnarnefndin í Vestmannaeyjum hefur ekki komið saman eftir að gos hófst í Fimmvörðuhálsi en þar sem ekkert bendi til þess að vá skapist hér vegna eldsumbrotanna, þá hefur ekki þótt ástæða til að kalla nefndina saman. Vatnsból Eyjamanna er þó í næsta nágrenni en Elliði Vignisson, bæjarstjóri segir að fylgst sé með vatnsbólinu í samstarfi […]

Vinna að hefjast aftur í Landeyjahöfn

Starfsmenn Suðurverks hf. eru nú á leið í Bakkafjöru þar sem þeir eru að gera Landeyjahöfn. Eysteinn J. Dofrason sagði að þeir hafi fengið leyfi almannavarna nú fyrir hádegi til að hefja störf. Ekki er þó enn ljóst hvort starfsmennirnir fá að gista í Bakkafjöru. (meira…)

�?ór tók sigurmynd febrúarmánaðar

Þór Sigurgeirsson Vídó tók sigurmyndina fyrir febrúarmánuð í Ljósmyndasamkeppni Frétta og Ljósmyndasafns Vestmannaeyja. Myndin birtist á forsíðu Frétta í síðustu viku en þemað fyrir febrúar var Hús. Þátttaka í febrúar var mjög góð, 52 myndir bárust í keppnina en þemað í marsmánuði er Hraunið. Hægt er að senda inn myndir á Ljósmynasafn Vestmannaeyja, Ráðhúströð, 900 […]

Gosvirknin að breytast

Eldgosið í Fimmvörðuhálsi er að breytast, bólstri reis upp frá sprungunni, klukkan stundarfjórðung yfir sjö og bólstrinn nær í um fjögurra kílómetra hæð. Sjónarvottur segir að svört slikja sé komin á Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökul. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.