Gruggugt vatn í krönum Eyjamanna

Vegna viðgerða á vatnsleiðslu til Vestmannaeyja í nótt sem leið er töluvert loft á neysluvatnskerfi Eyjamanna. Vatnið kemur gruggugt úr krönum en er drykkjarhæft. Margir íbúar Vestmannaeyja hafa sett sig í samband við HS veitur í Eyjum í dag vegna óhljóða í vatnslögnum. Í kjölfar viðgerðar á vatnsleiðslu til Eyja í nótt komst loft inn […]
Leggur til 10 þúsund tonnum meira á næsta fiskveiðiári
Hafrannsóknastofnunin leggur til að heimilt verði að veiða 160 þúsund tonn af þorski á næsta fiskveiðiári. Þetta er 10 þúsundum tonna meira en stofnunin lagði til fyrir réttu ári. Stofnunin metur stærð þorskstofnsins nú 850 þúsund tonn. (meira…)
�?kuníðingur í vondum málum
Bílstjóri ók á 120 km. hraða eftir þjóðveginum til Selfoss. �?að er nokkuð yfir leyfilegum hámarkshraða. Lögreglan varð þessa ökuníðings var, og eltir hann. �?kuníðingurinn sér að lögreglan er á eftir og sér og eykur því hraðann. En lögreglan eykur líka hraðann og nær honum rétt austan Selfoss. �?kuníðingurinn gefst því upp. (meira…)
Glæsileg dagskrá Sjómannadagshelgarinnar hafin
Glæsileg dagskrá Sjómannadagshelgarinnar hófst nú rétt áðan með knattspyrnumóti áhafna á Þórsvelli. Eftir það rekur hver dagskrárliðurinn annann þangað til um miðnætti á sunnudag að dagskráin er tæmd. Þá eru nokkur atriði aukalega sem eru ekki á dagskránni, eins og rokktónleikar í Höllinni í kvöld en dagskrá Sjómannadagshelgarinnar má lesa hér að neðan. (meira…)
Rútuferðir til Grindavíkur á sunnudag

Vegna mikillar eftirspurnar og gríðarlegrar stemmningar ætlar stórsveitin Stallahú, í samstarfi við stjórn ÍBV að vera með rútuferðir til Grindavíkur frá Smáralindinni á sunnudag. Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur í Grindavík og er búist við mikilli stemmningu á vellinum og því ætla Eyjamenn að vara kallinu og mæta vel gallaðir, hvítir og glaðir til Grindavíkur. Þetta […]
Leiðrétting frá Höllinni
Rekstaraðillar Hallarinnar ákváðu fyrir skemmstu að breyta opnunartímanum í Höllinni frá og með 1. maí 2010 og standa böllin nú frá frá 23:30 til 03 en ekki 04 eins verið hefur undanfarin ár. Einnig ákváðu Hallarmenn í framhaldi af því að lækka miðaverð í forsölu hjá sér niður í 1500 kr (1000 kr afsl)en verðið […]
Hlupu Gautaborgarmaraþonið

„Við fórum út 22. maí og tókum þátt í Gautaborgarhlaupinu sem er árlegt hlaup,“ sagði Magnús Bragason en hann og Adda Sigurðardóttir, kona hans, hlupu bæði hálfmaraþon í hálfgerðri karnivalstemmingu. „Í ár var slegið met því 58 þúsund manns voru skráðir til keppni en hlaupið er talið vera fjölmennasta hálfmaraþonhlaup í heimi. Það var sól […]