Lady Gaga mun svífa yfir vötnunum

Sumarstúlkukeppni Vestmannaeyja fer fram í Höllinni á laugardag. Þrettán stúlkur á aldrinum 18 og 19 ára taka þátt í keppninni sem fer nú fram í 24. sinn. Hjördís Elsa Guðlaugsdóttir, fram­kvæmdastjóri Sumarstúlkukeppn­innar, sagði að stelpurnar kæmu fjórum sinnum fram um kvöldið. (meira…)

Vel verður vandað til Goslokahátíðarinnar

Fyrstu helgina í júlí höldum við Eyjamenn upp á goslokin og líkt og undanfarin ár verður vegleg goslokahátíð haldin. Vestmannaeyjabær leggur mikinn metnað í að hátíðin verði sem vönduðust og miklu hefur verið kostað til. “Efni og andi í byggingarlist” – sýning á verkum Högnu Sigurðardóttur arkitekts, “Vísur úr vísnabókinni” fjölskyldutónleikar Gunnars Þórðarsonar og félaga, […]

Fréttir gefa út sérstakt blað vegna þessara tímamóta

Seinnipartinn í júlí í sumar, verður nýja höfnin í Landeyjum tekin í notkun og Herjólfur fer því sigla þangað. Væntanlega verður mikið um dýrðir þegar þessi samgöngubót Vestmannaeyja verður tekin í notkun. Fréttir ætla ekki að láta sitt eftir liggja og munu gefa út sérstakt aukablað tileinkað Land-Eyjahöfn. (meira…)

17. júní hátíðahöldin vel heppnuð í Eyjum

Hátíðahöldin á Þjóðhátíðardaginn, 17. júní fóru vel fram í Vestmannaeyjum í gær enda veður milt og gott. Ágætis aðsókn var á hátíðarhöldin, meiri en oft áður og dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg. Gengið var fylktu liði frá íþróttamiðstöðinni og niður á Stakkagerðistún þar sem hin eiginlegu hátíðahöld fóru fram. (meira…)

Hlakka til að skreppa í sunnudagsbíltúr til Eyja

Strandaglópur ehf. rekur afgreiðslu Herjólfs í Landeyjahöfn en Sigmar Jónsson er eigandi og framkvæmda­stjóri fyrirtækisins. Sigmar hefur í nokkur ár starfað við Bakkaflugvöll en færir sig nú um set og kemur til með að hafa umsjón með afgreiðslu skipsins, farþegaaðstöðu og svæð­inu í kring. (meira…)

Góð ferð austur hjá stelpunum

Kvennlið ÍBV gerði góða ferð austur á land um og yfir Þjóðhátíðardaginn 17. júní. Daginn fyrir Þjóðhátíðardaginn léku stelprnar gegn Hetti á Egilsstöðum og unnu stórsigur, 1:6. 17. júní léku þær svo gegn Fjarðabyggð/Leikni og fór leikurinn fram á Eskifirði. Þann leik unnu stelpurnar 1:4 en ÍBV trónir sem fyrr á toppi B-riðils með fullt […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.