Byrjað að �??tyrfa�?? í fjölnota íþróttahúsinu

Nú er lokafrágangur hafinn á nýju fjölnota íþróttahúsi við Hásteinsvöll en í húsinu verður m.a. aðstaða fyrir frjálsar íþróttir og hálfur knattspyrnuvöllur. Í morgun var hafist handa við að leggja gervigrasið en það er þýska fyrirtækið Polytan sem sér um verkið. Þrír Þjóðverjar komu sérstaklega til landsins til að leggja grasið en hingað komu þeir […]
Bingó í kvöld

Í kvöld klukkan 19.30 verður bingó í Týsheimilinu við Hamarsveg. Bingóið er hluti af fjáröflun krakka í 4. flokki handboltans hjá ÍBV sem stendur fyrir bingóinu en verið er að safna fyrir utanlandsferð flokkanna. Stefnan er tekin á þátttöku í Partille Cup í Svíþjóð í sumar en áætlað er að halda í það minnsta fjögur […]
Bæjarráð vill að Herjólfur sigli strax til �?orlákshafnar í vondu veðri

Bæjarráð Vestmannaeyja fjallaði um málefni Landeyjahafnar á fundi sínum í dag og fagnaði tillögum Siglingastofnunar og samþykki ráðherra sem kynntar voru í gær. Bæjarráð leggur hins vegar til að þegar ófært er í Landeyjahöfn, sigli Herjólfur umsvifalaust til Þorlákshafnar en bíði ekki af sér veðrið. Ákvörðun um slíkt liggi þó hjá skipstjóra Herjólfs. Bæjarráð leggur […]
Stefnir í stórglæsilegt konukvöld

Það stefnir í stórglæsilegt konukvöld í Höllinni næstkomandi laugardag en dagskrá kvöldsins verður í hæsta gæðaflokki. Meðal annars mun Helgi Björnsson troða upp, Valgerður Guðnadóttir, ein af okkar bestu söngkonum, strákarnir í Svörtum fötum koma fram auk þess sem Jónína Ben og Sölvi Tryggvason kynna nýju bókina, Jónínu Ben, sem vakið hefur mikla athygli undanfarið. […]
Kjósum vitræna umræðu

Ég býð mig fram til setu á stjórnlagaþingi 2011. Ásamt 522 öðrum. Augljóst er að það verður ekki létt verk fyrir kjósendur að kynna sér hvað hver og einn frambjóðandi stendur fyrir í þessum sögulegu kosningum sem framundan eru. Þar af leiðandi er ekki langsótt að spá því að kjósendur muni skipta frambjóðendum í tvo […]
Siglt til �?orlákshafnar síðdegis í dag

Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar í dag þar sem óvissa er hvort hægt verði að sigla til Landeyjahafnar. Ferðin til Þorlákshafnar verður farin 15:15 frá Vestmannaeyjum og frá Þorlákshöfn klukkan 18:45. Ekkert verður því siglt til Landeyjahafnar í dag en þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip. (meira…)
�?að er ófært, athuga seinna í dag

Á sínum tíma þegar maður átti pantað með flugi til eða frá Eyjum var nauðsynlegt að hringja til að athuga hvort flugfært væri. Þá var svarið gjarnan,því miður ófært en hafið samband aftur eftir tvo klukkutíma. Þannig þurftu Eyjamenn oft að bíða jafnvel dögum saman til að athuga hvort hægt væri að fljúga. (meira…)
Jeffsy með tvö í sigri á KR

ÍBV spilaði sinn annan æfingaleik í vetur gegn KR í Egilshöll. Það kom í hlut Ian Jeffs og Tryggva Guðmundssonar að skora í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik skoraði Jeffsy aftur og kom ÍBV í 3-0. KR náði þó að minnka muninn í 3-2 áður en var flautað til leiksloka. Kaflaskiptur leikur hjá ÍBV í […]
Auka þarf áhrif kjósenda

Draga þarf skýrari mörk milli framkvæmdavalds og löggjafarvalds og auka áhrif kjósenda í kosningum. Almenningur, þjóðin sjálf, þarf að geta gripið inn í mál á hverjum tíma og varið mikilvægustu hagsmuni sína. Mig langar að útskýra eitt þessara atriða nánar hér. Þeir sem vilja geta fengið ítarlegri upplýsingar um manninn og málefnin á vefsíðunni www.dagskammtur.wordpress.com. […]