Gunnar Heiðar næstu fjögur ár hjá ÍBV

Gunnar Heiðar Þorvaldsson mun á morgun skrifa undir fjögurra ára samning við ÍBV, samkvæmt heimildum Eyjafrétta. Gunnar Heiðar ólst upp í Eyjum og spilaði upp alla yngri flokka hjá félaginu þar til hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik sumarið 1999. Gunnar fór í atvinnumennsku haustið 2004 og hefur síðan þá verið á mála hjá Halmstad, Hannover […]
Smáey VE lagt vegna kvótaskerðingar

Útgerðarfyrirtækið Bergur-Huginn í Vestmannaeyjum ætlar að leggja einu af þremur skipum fyrirtækisins vegna kvótaskerðingar undanfarin ár. Áhöfninni hefur verið tilkynnt um uppsagnir. Bergur-Huginn gerir út þrjú 29 metra togskip sem eru eingöngu á bolfiskveiðum. Skipin veiða mest af ýsu en fyrirtækið hefur undanfarin ár haft um fjögur prósent af úthlutuðum ýsukvóta. Undanfarin þrjú ár hefur […]
Maríhúana fannst á gistiheimili

Í morgun gerði lögreglan í Eyjum, húsleit á gistiheimili í bænum. Þar fundust um 30 grömm af maríhúana. Aðili sem var þar með herbergi á leigu var handtekinn og færður í fangageymslu. Hann verður yfirheyrður síðar í dag. Einnig fundust um 70.000.- kr. af peningum sem voru haldlagðir. (meira…)
Ríkið taki þátt í kostnaðinum

Elliði Vignisson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum segir að ríkisvaldið ætti að taka þátt í kostnaði við að minnka mengun frá sorpbrennslu í bænum. Umhverfisráðherra fór í gær fram á að sorpbrennslu þar yrði hætt. (meira…)
Svartfuglinn settist upp í gær

„Þetta er vorboði, heldur betur,“ sagði Sigurgeir Jónasson, ljósmyndari Morgunblaðsins og fuglaáhugamaður, í Vestmannaeyjum. Hann sá í gær að svartfuglinn var sestur upp í Ystakletti. Sigurgeir var búinn að fylgjast með fuglabælunum og í gær fylltust allir kórar og holur í Ystakletti. (meira…)
Spáir ofsaveðri í nótt

Veðurstofan spáir aftakaveðri í Eyjum seint í nótt. Lægð úr suðvestri er á leið í upp að landinu og veldur sterkum suðaustan vindi með úrkomu. Samkvæmt veðurkorti belgings.is verður áhrifa lægðarinnar farið að gæta uppúr hádeginu og hvassviðri skollið á kvöld og fer vaxandi er líður á nóttina. Verst verður veðrið milli kl. 3 og […]
Eyjamenn skoðaðir

Sóttvarnalæknir ætlar að setja af stað sérstaka heilsufarsrannsókn á íbúum á Ísafirði, Vestmannaeyjum og Kirkjubæjarklaustri vegna díoxínmengunar. Mengun greindist í töluverðu magni í búvörum og fóðri hjá bændum í nágrenni sorpbrennslunnar á Ísafirði og bændur næst brennslunni þurfa að bregða búi í kjölfarið. (meira…)