Slæm ölduspá næstu daga

Óvíst er hvort hægt verður að vinna eitthvað við sanddælingu við Landeyjahöfn næstu daga, en spáð er áframhaldandi suðvestan brælu. Sanddæluskipið Skandia hefur ekkert getað unnið síðan á laugardag. Í dag var 3,4 metra ölduhæð á dufli við Landeyjarhöfn, en ölduhæð verður að vera undir 2 metrum til að hægt sé að vinna við sanddælingu. […]
Boltinn í beinni í Hallarlundi í kvöld

Í kvöld átti að vera fundur um ESB í Höllinni en honum hefur verið frestað. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að hafa boltann í beinni í Hallarlundi, efri sal Hallarinnar sem var opnaður með pompi og prakt á dögunum. Tveir stórleikir verða á skjánum í Hallarlundi, Manchester City og Dinamo Kiev og svo […]
�?mögulegt að halda úti sólarhringsvakt

„Það liggur fyrir að Heilbrigðisstofnun hefur sagt upp samningi við lögregluna um sjúkraflutninga í kaupstaðnum og mun sú uppsögn taka gildi frá 1. júní nk. að óbreyttu. Ástandið er grafalvarlegt, ég dreg ekki fjöður yfir það,“ sagði Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður, um þá stöðu sem komin er upp nú þegar allt stefnir í að lögreglan […]